Lífið

Veigar eini keppandinn sem hefur ekki misst eitt kíló

Stefán Árni Pálsson skrifar
Veigar og Ástrós fengu frábæra dóma.
Veigar og Ástrós fengu frábæra dóma.

Eyjólfur Kristjánsson og Telma Rut Sigurðardóttir voru send heim eftir danseinvígi í Allir geta dansað á föstudagskvöldið. Eyfi og Telma og Manuela og Jón Eyþór voru í tveimur neðstu sætunum eftir að símakosningu lauk.

Sex pör dönsuðu á föstudagskvöldið og eru því nú fimm pör eftir. Parið sem fékk bestu einkunn frá dómurunum voru þau Veigar Páll og Ástrós.

Þau fengu tvær 9 og eina 10 og því samanlagt 28 af 30 mögulegum. Þau buðu upp á diskó og dönsuðu ChaCha við lagið Stayin Alive með Bee Gees.

Þetta höfðu dómararnir að segja um atriðið:

„Vá rosalegur kokteill. Nú varstu að njóta þín og gleymdir stund og stað. Vel dansað og flottur fótaburður. Ykkar besta frammistaða, glæsilegt,“ sagði Selma.

„Þið hafið alltaf verið með góðan stöðugleika. Þú varst að fýla þig í kvöld sem var mjög gott. Aðeins úr takti stundum. Mjög skemmtilegt atriði. Vel gert,“ sagði Karen.

„Rosalega ánægður með vinnuna á litlu atriðunum. Mjaðmahreyfingar og allt saman. Þú greinilega naust þín. Glæsilegt,“ sagði Jóhann.

Hér að neðan má sjá atriði Veigars og Ástrósar.

Klippa: Veigar Páll og Ástrós dansa ChaCha við Bee Gees

Tengdar fréttir

Marta blá og marin eftir æfingar

Jón Viðar Arnþórsson og Marta Carrasco voru fyrsta parið á svið síðastliðið föstudagskvöld og dönsuðu þau Jive við lagið Gaggó vest með Eiríki Haukssyni. Jón Viðar var áður með Malín Öglu Kristjánsdóttur í teymi en hún er komin í leyfi þar sem hún er gengin yfir sex mánuði á leið.

Vala og Siggi fengu nánast fullkomna einkunn

Vala Eiríks og Sigurður Már Atlason dönsuðu Paso Doble við lagið Don't let me be Misunderstood úr kvikmyndinni Kill Bill síðastliðið föstudagskvöld í beinni útsendingu á Stöð 2.

Veigar og Ástrós með áreynslulausan Vínarvals

Veigar Páll Gunnarsson og Ástrós Traustadóttir dönsuðu Vínarvals undir laginu You Don't Own Me með Harley Quinn úr Suicide Squad í beinni útsendingu á Stöð 2 síðastliðið föstudagskvöld í skemmtiþáttunum Allir geta dansað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×