Erlent

Gordon Brown kallar herinn heim frá Írak á næsta ári

Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands hefur gefið í skyn að breski herinn muni hverfa frá Írak á næsta ári.

Herinn muni halda þeim 4.100 hermönnum sem eru í Írak fram að áramótum en síðan verði þeir sendir heim að mestu leyti. Næsta sumar verði aðeins nokkur hundruð breskir hermenn eftir í landinu.

Ummælum Brown í þessa veru hefur verið vel tekið af þingmönnum í öllum flokkum á breska þinginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×