Erlent

Sacha Cohen bannað að koma á Óskarsverðlaunahátíðina

Cohen í hlutverki sínu í Hugo.
Cohen í hlutverki sínu í Hugo.
Ákveðið hefur verið að banna breska gamanleikaranum Sacha Cohen að vera með á Óskarverðlaunahátíðinni á sunnudagskvöld þótt að myndin Hugo sem hann leikur aðalhlutverk í sé tilnefnd til nokkurra verðlauna.

Aðstandendur hátiðarinnar segja að Cohen, best þekktur fyrir persónur sínar Borat og Bruno, fái ekki að koma á Óskarverðlaunahátíðina nema hann lofi þeim að vera ekki með neinar óvæntar uppákomur á hátíðinni. Ef slíkt loforð liggur ekki fyrir bráðlega mun Cohen ekki fá miða sína á hátíðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×