Erlent

Tólf ára gamall og snýr baki við krabbameinsmeðferðum

Alex hefur því fengið nóg. Hann vill nýta tíma sinn með fjölskyldu sinni og vinum.
Alex hefur því fengið nóg. Hann vill nýta tíma sinn með fjölskyldu sinni og vinum. mynd/ABC
Tólf ára gamall piltur í Bandaríkjunum hefur tekið mikilvægustu ákvörðun lífs síns. Hann ætlar að hætta krabbameinsmeðferðinni og eyða síðustu vikum sínum með fjölskyldunni.

Sjúkrasaga Alex Rodriguez er með ólíkindum. Hann var sjö ára gamall þegar læknar fundu stærðarinnar æxli í bakinu á honum. Síðan þá hefur hann farið í fjölda skurðaðgerða og tekist á við langar geislameðferðir.

Við síðustu rannsókn kom í ljós að meinvörp höfðu myndast víðsvegar um líkama hans.

Alex hefur því fengið nóg. Hann vill nýta tíma sinn með fjölskyldu sinni og vinum. Hann nýtur mikils stuðnings frá heimabæ sínum og hafa nágrannar hans og vinir hafið fjáröflun svo hinstu óskir Alex rætist.

„Hann er einstakur piltur," sagði Carolyn Camacho, amma Alex. „Þrátt fyrir þær hörmungar sem hann hefur gengið í gegnum er hann enn glaður. Hann vill ekki ræða um krabbameinið, frekar vill hann horfa á björtu hliðarnar."

Nágrannar Alex safna nú fé til að greiða fyrir líknarmeðferð hans. Vonast er til að hann fá síðustu óskir sínar uppfylltar en hann þráir meðal annars að heimsækja Coca-Cola verksmiðjuna í Atlanta.

Eftir að athygli var vakin á máli Alex bauðst kaupsýslumaður í Tennessee til að greiða fyrir heimsóknina. Hann ætlar einnig að útvega Alex eðalvagn svo að hann geti heimsótt verksmiðjuna með stæl.

Íbúar í Shelbyville hafa síðan sýnt stuðning sinn í verki með því að hengja bláa borða á tré og póstkassa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×