Húðflúraði strimilinn á handlegginn Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar 27. mars 2014 22:05 Foreldrar Stian voru ekki sáttir við uppátækið. Vísir/Skjáskot
18 ára gamall norskur drengur að nafni Stian Ytterdahl húðflúraði á framhandlegg sinn kvittun frá Mcdonalds skyndibitastað. Hann sér ekki eftir neinu. Daily Mail greinir frá. Stian sat með félögum sínum á Mcdonalds í Lørenskog í Noregi og snæddi hamborgara. Félagarnir voru ósáttir með framferði Stian í kvennamálum og ákváðu að honum skyldi refsað. Félagarnir buðu Stian eftirfarandi afarkosti: hann fengi sér húðflúr af Barbie-dúkku á rasskinnina eða þá strimilinn sem þeir fengu er þeir borguðu fyrir hamborgarana flúraðan á handlegginn. Að sögn Stian valdi hann það skárra af tvennu illu, og rölti með kvittunina á húðflúrsstofuna Sabelink Tattoo. Húðflúrarinn vann sína vinnu, og kvittunin var grafin í húð Stian. Ekki ætti að koma lesendum á óvart að foreldrar drengsins voru vægast sagt ósátt með uppátækið. Foreldrar hans lásu um húðflúrið í blaðinu, og faðir hans sendi honum tölvupóst sem var svohljóðandi: „Hvað í veröldinni hefurðu gert af þér? Heldur þú að þú getir komið heim með þetta?! Móðir þín fékk taugaáfall!" Stian segist ekki sjá eftir neinu, og finnst skondið að hafa sérstætt flúr sem slíkt. Húðflúrsstofan, Sabelink Tattoo, bauð honum að láta húðflúra kvittunina fyrir húðflúrinu honum að kostnaðarlausu á hinn handlegginn. Stian þáði boðið og er bókaður í næsta húðflúrstíma innan skamms.
Mest lesið Barn strauk af leikskóla í Hafnarfirði Innlent Fimmtán ára stúlka drap tvo fyrir Foxtrot-gengið Erlent Verslun opnar á varnarsvæðinu en viðveran stendur í stað Innlent Alvarleg mistök við vistun barna í Reykjanesbæ Innlent Ætla ekki að reka legurými í Klíníkinni Innlent Rasískur reiðilestur Trump: Lýsti Sómölum sem „heimsku“ og þjófóttu fólki Erlent Heuermann sagður ætla að játa Erlent Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Innlent Fékk dánaraðstoð í gær eftir harða baráttu við föður sinn Erlent Deila um hjartastopp endaði með tugmilljóna bótum Innlent Fleiri fréttir Bað auðjöfra um pening: Hét því að halda stríðinu áfram Alvarlegur misbrestur hjá barnavernd Reykjanesbæjar Krónprinsinn sagður hvetja til áframhaldandi aðgerða gegn Íran Ekkert flugvallarverkfall á Spáni á morgun en kannski á mánudag Heuermann sagður ætla að játa Undirskrift Trumps bætt á bandaríska seðla Rasískur reiðilestur Trump: Lýsti Sómölum sem „heimsku“ og þjófóttu fólki Fékk dánaraðstoð í gær eftir harða baráttu við föður sinn Finnskur þingmaður dæmdur fyrir að segja samkynhneigð „þroskaröskun“ Fólkaflokkurinn fram úr Javnaðarflokknum Fimmtán ára stúlka drap tvo fyrir Foxtrot-gengið Flugvallarstarfsmenn á Tenerife í verkföll yfir páskana Heimta enn aðstoð sem þeir segjast ekki þurfa Boðar til viðræðna við sex flokka Forsætisráðherra á fundi bandamanna Úkraínu í Helsinki Færeyingar tvístígandi fyrir aðrar kosningarnar á þremur dögum Viðsemjendum fækkar: Araghchi og Ghalibaf gefin grið... í bili Segir viðsemjendur ekki þora að gangast við viðræðum Frederiksen fær umboð til stjórnarmyndunar Íranir hafna friðartillögu Bandaríkjamanna Ætla að lýsa öldunga látna nema þeir sýni lífsmark Allt velti á Rasmussen Skrúfa fyrir eina helstu leiðina fyrir gas til Úkraínu Tveir handteknir vegna sjúkrabílabrennu Vill halda áfram sem forsætisráðherra Íranir segja engar viðræður í gangi þvert á yfirlýsingar Trumps Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Tæplega þúsund drónar á einum sólarhring Haaland keypti Heimskringlu á 17 milljónir „Markmiðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar“ Sjá meira