Norður-Kórea kallar forseta Suður-Kóreu "blaðrandi smábóndakonu" Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar 27. mars 2014 19:30 Park Gyun-Hye, forseti Suður-Kóreu stóð undir árásum frá nágrannaríki sínu. Vísir/AP
Norður-Kórea gaf út yfirlýsingu þar sem ráðist er að Park Geun-Hye, forseta Suður-Kóreu á heiftarlegan hátt. Park er sökuð um að hafa rofið friðhelgi milli norðurs og suðurs, og kölluð blaðrandi smábóndakona. Þetta kemur fram í frétt AFP um málið. Yfirlýsingin vísaði til ræðu sem Park hélt á kjarnorkumálaráðstefnu í Haag í Hollandi á dögunum, en hún sagðist hafa áhyggjur af því að kjarnorkuefni Norður-Kóreumanna kæmust í hendur hryðjuverkamanna. Einnig talaði Park um að hætta stafaði af kjarnorkusamstæðu Norður-Kóreu í Yongbyong, og sagðist óttast að slys í líkingu við það sem atvikaðist í Chernobyl fyrir 28 árum gæti átt sér stað, en þá kviknaði í sóvéskum kjarnakljúf með gífurlega skæðum afleiðingum. Talsmaður norður-kóreskrar nefndar sem vinnur að friðsamlegri sameiningu Kóreuskaga sagði ummæli Park fótumtroða samkomulag sem ríkt hefur milli nágrannaríkjanna í tæpan mánuð eftir að þau sammæltust um að hætta að rægja hvort annað. „Hún þarf að gera sér grein fyrir því að hún er ekki lengur smábóndakona blaðrandi við sjálfa sig úti í horni heldur handhafi forsetavalds," sagði í yfirlýsingu nefndarinnar.
Mest lesið Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Innlent „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Erlent Fleiri fréttir Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Sjá meira