Laukurinn velur Grýlu sem eina mikilvægustu persónu ársins 14. desember 2010 13:50 Skjáskot af vef Lauksins
Enginn hafði jafn mikil áhrif á flugumferð á árinu sem er að líða og hin hryllilega tröllkona Grýla sem í vor stóð fyrir eldgosinu í Eyjafjallajökli. Aska gossins dreifðist víða um lönd og varð til þess að loka þurfti flugvöllum um alla Evrópu. Kostnaður alþjóðasamfélagsins vegna eldgossins nam hundruðum milljónum dollara. Þetta er lausleg þýðing á upphafi greinar sem birtist á vefritinu kómíska The Onion, eða Lauknum. Ritstjórn Lauksins hefur valið mikilvægasta fólk ársins 2010 og er sjálf Grýla þar í sautjánda sæti. Laukurinn er þekktur fyrir að snúa veruleikanum á hvolf þannig að fólk brosir út í annað, hið minnsta. Laukurinn heldur áfram með nýstárlega sýn sína á gosið í Eyjafjallajökli: Upphaflega var talið að „Huldufólk" hefði komið eldgosinu af stað vegna reiði sinnar í garð dauðlegra manna sem höfðu vanhelgað jökulinn með heimsóknum sínum veturinn áður. Hafist var handa við að senda huldufólkinu sætindi og aðrar gjafir, og virtust þær hafa þau áhrif að gosmökkurinn minnkaði um stund þannig að einstaka flugvél gat komist leiðar sinnar. Þar sem sætindin virtust ekki hafa afgerandi áhrif á gosið ákváðu menn að leita annarra skýringa. Eftir að þeir höfðu sömuleiðis útilokað „Lagarfljóts"-orminn komust rannsakendur að þeirri niðurstöðu að Grýla væri ábyrg eldglæringunum, en Grýla er best þekkt fyrir að dúsa í helli sínum utan þess sem hún leitar að óþekkum börnin fyrir Jólin til að stinga í pokann sinn. Þegar skýringin á eldgosinu var fundin hafði það þegar haft geigvænlegar afleiðingar, matarsendingar höfðu úldnað og fjöldi leiðtoga hafði misst af jarðarför pólska forsetans, Lech Kaczynski. Óþolinmóðir ferðalangar reyndu hvað þeir gátu til að stöðva tröllkonuna en ekkert gekk. Þá ákváðu íslenskir embættismenn að framkvæma fornan galdur sem fólst í að skera rúnir í eikarplatta og kasta að fótum Grýlu. Var það mál manna að þetta hefði þurft að gera mun fyrr en eins og búist var við hætti eldgosið og flugsamgöngur voru komnar í lag aðeins nokkrum klukkustundum síðar. Í framhaldinu var ákveðið að fylgjast náið með Grýlu, og í varnaðarskyni, einnig með ófríðu börnunum hennar þrettán. Lesa má „fréttina" um Grýlu á vef Lauksins með því að smella hér. Laukurinn byrjaði að telja niður í tuttugasta sæti þegar kemur að mikilvægustu manneskju ársins. Í dag er Laukurinn kominn að sautjánda sætinu og heldur niðurtalningin áfram fram að áramótum.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira