Íslenski boltinn

Hjálmar áfram hjá Fram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hjálmar Þórarinsson verður áfram hjá Fram.
Hjálmar Þórarinsson verður áfram hjá Fram. Mynd/Hörður

Hjálmar Þórarinsson hefur samið við Fram til næstu tveggja ára. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Fram í dag.

Hjálmar var í sumar í láni hjá Fram frá Hearts í Skotlandi en er nú laus undan samningi við Skotana.

„Hjálmar stóð sig virkilega vel á sínu fyrsta tímabili í efstu deild og ég er sannfærður um að hann mun eflast enn frekar á næstu árum. Auk þess er hann vandaður einstaklingur sem fellur vel í hvaða hóp sem er innan vallar sem utan og það er ekki minnst það sem við leitum að í þeim mönnum sem við viljum að leiki fyrir Fram," sagði Ríkharður Daðason, formaður stjórnar Fram FFR, í fyrrnefndri yfirlýsingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×