Augað sér um Atlantsála Atli Steinn Guðmundsson skrifar 22. maí 2008 17:07 MYND/CNN
Draumur 19. aldar verkfræðingsins Alexanders Stanhope St George er loks orðinn að veruleika. Barnabarn hans, Paul St George, hefur smíðað kíki með rúmlega þriggja metra breiðri linsu sem gerir Lundúnarbúum kleift að sjá yfir Atlantshafið og beinustu leið til Manhattan í New York. Með sams konar búnaði þar geta svo New York-búar horft til baka á Bretana. Þetta er þó ekki alveg þvottekta kíkir vegna þess að tækni St George byggir á vefmyndavélum. Þeir sem líta í kíkinn fá því rafræna aðstoð við að berja augum lífið hinum megin Atlantsála enda ekki bein sjónlína á milli borganna vegna lögunar jarðar. Kíkirinn er í raun listaverk sem dregur dár að gömlum hugmyndum um hinn svokallaða telectroscope sem í reynd var misritun blaðamanns á 19. öld og átti að heita electroscope en það er mælitæki sem hefur allt annað hlutverk en kíkir. Það er þó ekki alltaf líf og fjör hinum megin vegna þess að þeir sem líta í kíkinn snemma að morgni Lundúnamegin sjá ekkert nema niðdimma nóttina í New York vegna tímamismunarins. CNN greindi frá þessu.
Mest lesið Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Innlent Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúra barma Erlent Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Innlent Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Innlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Innlent Fleiri fréttir Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúra barma Fimm hermenn skotnir á herstöð Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Nýr forseti Póllands vill draga úr áhrifum ESB Stendur í vegi rannsóknar á milljarða svikamyllu Birtist óvænt á þaki Hvíta hússins Yfir 400.000 tilkynningar um kynferðisofbeldi Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Sjá meira