Fótbolti

Valinn í lið um­ferðarinnar eftir að hafa skorað sitt fyrsta deildar­mark í fjögur ár

Anton Ingi Leifsson skrifar
Böðvar í leik með pólska félaginu.
Böðvar í leik með pólska félaginu. vísir/getty
Böðvar Böðvarsson er í liði umferðarinnar í pólska boltanum eftir að hafa leikið vel í sigri Jagiellonia Białystok um helgina.

Jagiellonia Białystok vann 2-0 sigur á Arka Gdynia en Böðvar tvöfaldaði forystu Jagiellonia sjö mínútum fyrir leikslok með skoti utan af kanti.

Böðvar hefur ekki skorað deildarmark síðan hann skoraði 12. júlí 2015 er hann skoraði í 2-2 jafntefli gegn Pepsi-deild karla.





Böðvar hefur þó skorað síðan þá en hann skoraði meðal annars tvö mörk í Evrópuleik FH er liðið tapaði 3-2 fyrir Braga árið 2017 í forkeppni Evrópudeildarinnar.

Jagiellonia er í sjöunda sæti deildarinnar með 26 stig en þeir eru einungis fimm stigum á eftir Pogon Szczecin sem er á toppi deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×