Tónlist

Sjálfsvígssveifla með Singapore Sling

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Stilla úr myndbandinu við Suicide Twist
Stilla úr myndbandinu við Suicide Twist skjáskot
Níhílíska skynvillurokksveitin Singapore Sling gefur út plötuna Killer Classics 15. ágúst næstkomandi.

Henrik Baldvin er einnig meðlimur hljómsveitanna Hank & Tank og Dead Skeletons.aðsend
Í dag sendir sveitin frá sér fyrstu smáskífu plötunnar, Suicide Twist, ásamt meðfylgjandi myndbandi sem leikstýrt var af Henriki Baldvini Björnssyni og Heiðu Jónsdóttur.

Henrik Baldvin hefur farið fyrir sveitinni frá stofnun hennar um aldamótin. Alla tíð hefur sveitin haldið sig á hliðarlínunni innan íslensku tónlistarsenunnar og spilað töffararokk með mismunandi blæbrigðum á meðan tískustraumar og stefnur þjóta hjá.

Killer Classics er tíunda breiðskífa sveitarinnar og kemur út hjá Öldu Music, en síðustu fjórar plötur sveitarinnar hafa verið gefnar út af bresku útgáfunni Fuzz Club

Nafn sveitarinnar er ekki vísun til kokteilsins heldur til grískrar kvikmyndar sem ber sama nafn. Meðlimir sveitarinnar höfðu þó ekki séð myndina þegar þeir völdu nafnið.

Myndbandið við Suicide Twist má sjá hér að neðan.

Og hér ber að líta umslag plötunnar Killer Classics.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×