„Ég er hundrað prósent saklaus“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. febrúar 2018 09:00 Jay Rodriguez fagnar marki á móti Liverpool. Vísir/Getty
Jay Rodriguez, framherji West Bromwich Albion, var í gær ákærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir kynþáttafordóma gegn Gaetan Bong hjá Brighton í leik liða þeirra á dögunum. Kamerúnmaðurinn Gaetan Bong heldur því fram að atvikið hafi átt sér stað í 2-0 sigri West Brom 13. janúar síðastliðinn. Bong sagði dómara leiksins strax frá þessu. Jay Rodriguez segist ekki trúa því að hann hafi fengið á sig þessa kæru. „Ég er algjörlega niðurbrotin og get bara ekki trúað því að ég sé kominn í þessa stöðu. Ég neita þessum fölsku ásökunum hundrað prósent og ég mun sækja mér rétta lögfræðiaðstoð til að sanna sakleysi mitt,“ skrifaði Jay Rodriguez á Twitter.Absolutely gutted and in disbelief at the situation I find myself in. I 100% deny the false allegation and will take the correct legal advice to prove my innocence. — Jay Rodriguez (@JayRodriguez9) February 8, 2018 Martin Atkinson dómari tók ekki á málinu í leiknum sjálfum en skrifaði um það í skýrslu sína um leikinn. Hann ræddi þetta samt við fjórða dómarann. Gaeten Bong fór síðan á Twitter eftir leikinn og ýjaði því að Rodriguez hafi verið með kynþáttaformdóma gegn sér. „Sum orð ættu menn ekki að láta falla á fótboltavellinum og þá alls ekki leikmenn. Orð Rodriguez eru ófyrirgefanleg fyrir mann eins og mig,“ skrifaði Gaeten Bong.Club statement on Jay Rodriguez...#WBAhttps://t.co/JI9wEmBwji — West Bromwich Albion (@WBA) February 8, 2018 Knattspyrnustjórarnir Chris Hughton hjá Brighton og Alan Pardew hjá West Brom, ræddu heillengi við dómarann eftir leikinn en voru ekki tilbúnir að segja frá því hvað fór þeim á milli. West Bromwich Albion hefur lýst yfir fullum stuðningi við Jay Rodriguez í þessu máli og það er alveg ljóst að hann mun berjast fyrir sakleysi sínu þegar hann kemur fyrir agnefnd enska sambandsins.
Enski boltinn Mest lesið Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti „Ég er bara Króati á morgun“ Handbolti Faxi ekki sár út í Íslendinga: „Ísland getur gert stóra hluti á EM“ Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti EM í dag: Slagsmál í Malmö og dónar í dinner Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Segir Svía hafa efni á að tapa fyrir Íslandi Handbolti Fleiri fréttir Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Sjá meira