Manchester City deildarbikarmeistari │Fyrsti bikar Guardiola með liðið Dagur Lárusson skrifar 25. febrúar 2018 18:30 Kompany fagnar marki sínu vísir/getty Manchester City var rétt í þessu að vinna deildarbikarinn eftir 3-0 sigur á Arsenal í úrslitaleiknum en mörk City skoruðu Aguero, Kompany og David Silva. Það var jafnræði með liðunum fyrstu mínúturnar og skiptust liðin á að sækja. Arsenal á t.d. algjört dauðafæri á 8. mínútu þegar Jack Whilshere hóf skyndisókn og sendi boltann á Mesut Özil sem gaf fyrir á Aubameyang sem einhvern veginn náði ekki að koma boltanum í netið. Á 19. mínútu tók Claudio Bravo markspyrnu fram völlinn og endaði boltann beint hjá Sergio Aguero sem var kominn einn í gegn og vippaði boltanum yfir Ospina í markinu og staðan orðin 1-0. Eftir þetta mark var City með yfirhöndina út allan fyrri hálfleikinn. Í seinni hálfleiknum héldu yfirburðir City áfram. Á 58. mínútu vann Vincent Kompany hornspyrnu sem Kevin De Bruyne tók. Hann sendi boltann út fyrir teiginn á Gundogan sem tók skot viðstöðulaust og barst boltinn til Kompany í teignum sem stýrði honum í netið og staðan orðn 2-0. Stuttu seinna gerði Manchester City út um leikinn. Þá fékk Danilo boltann á vinstri kanntinum, kom inná völlinn og átti frábæra sendingu á David Silva inná teignum sem sneri glæsilega á Mustafi og kom boltanum í netið.
Manchester City var rétt í þessu að vinna deildarbikarinn eftir 3-0 sigur á Arsenal í úrslitaleiknum en mörk City skoruðu Aguero, Kompany og David Silva. Það var jafnræði með liðunum fyrstu mínúturnar og skiptust liðin á að sækja. Arsenal á t.d. algjört dauðafæri á 8. mínútu þegar Jack Whilshere hóf skyndisókn og sendi boltann á Mesut Özil sem gaf fyrir á Aubameyang sem einhvern veginn náði ekki að koma boltanum í netið. Á 19. mínútu tók Claudio Bravo markspyrnu fram völlinn og endaði boltann beint hjá Sergio Aguero sem var kominn einn í gegn og vippaði boltanum yfir Ospina í markinu og staðan orðin 1-0. Eftir þetta mark var City með yfirhöndina út allan fyrri hálfleikinn. Í seinni hálfleiknum héldu yfirburðir City áfram. Á 58. mínútu vann Vincent Kompany hornspyrnu sem Kevin De Bruyne tók. Hann sendi boltann út fyrir teiginn á Gundogan sem tók skot viðstöðulaust og barst boltinn til Kompany í teignum sem stýrði honum í netið og staðan orðn 2-0. Stuttu seinna gerði Manchester City út um leikinn. Þá fékk Danilo boltann á vinstri kanntinum, kom inná völlinn og átti frábæra sendingu á David Silva inná teignum sem sneri glæsilega á Mustafi og kom boltanum í netið.
Enski boltinn Mest lesið Cantona spreytir sig á íslenskunni Fótbolti „Á Ítalíu væri Yamal að spila í Serie B“ Fótbolti Nokkrir tæpir í Grindavík sem „tala skít“ Körfubolti Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Enski boltinn Goðsögn hleður Guðjón Val og Gummersbach lofi Handbolti Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Íslenski boltinn Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Handbolti Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Enski boltinn „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Íslenski boltinn Mun aldrei jafna sig á tapinu gegn Íslandi á EM: „Var mér mjög erfitt“ Fótbolti Fleiri fréttir Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Hetja Leeds: „Þetta eru töfrar bikarsins“ Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Chelsea flaug áfram í undanúrslit Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Vill vera lengi hjá „stórliðinu“ Tottenham Hraunar yfir Enzo: „Farðu í burtu“ Manchester United ferðast um Norðurlöndin í sumar Isak fær að æfa með liðsfélögunum aftur Onana fær mun hærri laun ef Man. United kemst í Meistaradeildina Chelsea setti nýtt met í taprekstri Nýr stjóri Tottenham ekki velkominn hjá stuðningsmönnunum De Zerbi tekinn við Tottenham Heimsmeistara býðst að aðstoða De Zerbi Starf Howe í hættu De Zerbi opinn fyrir því að taka strax við Tottenham Þrír af hverjum fjórum stuðningsmönnum ósáttir við VAR Biðja knattspyrnukonur afsökunar Enska landsliðskonan missti fóstur Tottenham sagt vilja fá De Zerbi sem nýjan stjóra Arsenal-stjörnurnar yfirgefa landslið sín hver á fætur öðrum Tudor hættir störfum hjá Tottenham Sjá meira