Leikmenn United virðast ekki þurfa að skipta úr þessari gráu treyju í hálfleik Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. mars 2018 12:00 Ryan Giggs í gráa búningnum fræga á móti Southampton og þeim bláa sem hann klæddist í seinni hálfleik. Lukaku er sáttur í gráu. vísir/getty
Manchester United vann Crystal Palace, 3-2, í mögnuðum leik á Selhurst Park í Lundúnum í gærkvöldi en United kom til baka eftir að lenda 2-0 undir í seinni hálfleik. Þetta var í fyrsta sinn í fimm ár sem United-liðið kemur til baka og vinnur leik eftir að lenda 2-0 undir og í fyrsta sinn í sögu Mourinho í ensku úrvalsdeildinni sem lið hans vinnur leik eftir að lenda tveimur mörkum undir. Í sögulegu samhengi er sigurinn athygliverður hjá Manchester United því það er nú búið að vinna báða leiki sína í deildinni þar sem það hefur klæðst nýrri grárri þriðju treyju liðsins sem var tekin í gagnið fyrir tímabilið. Það er tveimur sigrum meira en í fjórum og hálfum leik síðast þegar liðið spilaði í gráu tímabilið 1995/1996. Þá safnaði United, undir stjórn Sir Alex Fergusons, aðeins einu stigi í fimm leikjum í gráu.Fjórum og hálfum spyr einhver sem kannast ekki við söguna? Jú, Sir Alex gafst upp á gráu treyjunni í hálfleik á móti Southampton 13. apríl 1996 þegar að liðið var 3-0 undir. Hann lét sína stráka skipta í bláar og hvítar varatreyjur liðsins en það skilaði þó ekki sigri. United hefur ekki spilað í gráu síðan. Þrátt fyrir slæmt gengi í gráu stóð United uppi sem Englandsmeistari þetta tímabilið en það var sektað um 10.000 pund fyrir að skipta um búning. Sir Alex sagði að aldrei hefði hann eytt jafnmiklum pening í jafnverðugt málefni. Gráa treyjan var valin af stuðningsmönnum fyrir tímabilið og á að tákna tengslin á milli þeirra og félagsins. Á treyjunni er skuggamynd af styttunni af heilögu þrenningunni; Sir Bobby Charlton, Denis Law og George Best, sem stendur fyrir utan Old Trafford. Manchester United vann einnig Jóhann Berg Guðmundsson og félaga hans í Burnley klæddir í grátt en Anthony Martial skoraði sigurmarkið í þeim leik.. @ManUtd have won 2 PL matches in a row in which they were wearing the GREY kit (also Burnley). That's one more win in grey than in all 4,5 matches in 1995/96.#CRYMUN live— Gracenote Live (@GracenoteLive) March 5, 2018
Enski boltinn Tengdar fréttir Það tók Mourinho sex ár á Englandi og tæplega 300 leiki að afreka það sem hann gerði í gær Manchester United kom til baka og vann Crystal Palace eftir að lenda 2-0 undir. 6. mars 2018 10:00 Sjáðu fyrstu þriggja marka endurkomu Man. Utd í fimm ár og uppgjör helgarinnar í enska Manchester United vann dramatískan sigur á Crystal Palace í gærkvöldi. 6. mars 2018 08:00 Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira
Það tók Mourinho sex ár á Englandi og tæplega 300 leiki að afreka það sem hann gerði í gær Manchester United kom til baka og vann Crystal Palace eftir að lenda 2-0 undir. 6. mars 2018 10:00
Sjáðu fyrstu þriggja marka endurkomu Man. Utd í fimm ár og uppgjör helgarinnar í enska Manchester United vann dramatískan sigur á Crystal Palace í gærkvöldi. 6. mars 2018 08:00