Sjónvarpsrétturinn nálgast fimm milljarða punda og enn á eftir að selja tvo pakka Anton Ingi Leifsson skrifar 13. febrúar 2018 22:30 Peningurinn í boltanum hækkar og hækkar. vísir/getty
Sjónvarpsrétturinn að enska boltanum hefur nú þegar verið seldur fyrir tæplega 4,5 milljarða punda, en enn á eftir að selja tvö pakka af sjö. Sky Sports hefur keypt fjóra af sjö pökkunum, en hver pakki inniheldur ákveðið magn af leikjum. BT Sport hefur svo keypt þann fimmta, en enn á eftir að selja síðustu tvö. Síðasti samningurinn sem var seldur fyrir hönd ensku úrvalsdeildarinnar fór samanlagt á 5,14 milljarða punda, en hann rennur út 2019. Hann var gerður árið 2015. Sky mun hafa forgang á því að velja einn leik um helgar og munu einnig fá laugardags kvöldleikina í fyrsta skipti. BT hefur keypt réttinn að hádegisleikjunum á laugardögum og borga þeir 295 milljónir punda á tímabili fyrir það sem gera 9,22 milljónir punda á leik. Þetta þýðir að Sky þarf að punga út 3,579 milljörðum eða 9,3 milljónum punda á hvern leik. Nánari útlistun á hverjum pakka fyrir sig má lesa á vef BBC. Mikið hefur verið rætt og ritað um komu Amazon, Facebook, Netflix eða Twitter inn á markaðinn, en það er ljóst að markaðurinn hefur heldur betur þrengst að minnsta kosti fyrir þessa aðila þar sem einungis tveir pakkar eru enn óseldir. Þeir pakkar sem á enn eftir að selja innihalda leiki í miðri viku annars vegar og hins vegar þá leiki sem eru leiknir á helgidögum. Sagt er að BT Sport hafi áhuga á pökkunum en ekkert hefur heyrst frá Sky.
Fótbolti Mest lesið „Mikið í gangi sem enginn veit af“ Formúla 1 Kærastinn kemur til varnar: „Allir glíma við sín vandamál“ Sport Gott silfur gulli betra en hvað nú? Enski boltinn Fékk annað gult fyrir að keyra inn í Mikael og lét dómarann heyra það Fótbolti „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Bikar- og Íslandsmeistararnir mætast Sport Barist um undirskrift Nunez Enski boltinn „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ Íslenski boltinn Þvælu að starf Ole Gunnar sé í hættu Fótbolti Tómas Bent seldur til Skotlands Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Nýju leikmenn Liverpool komnir með númer Liðin sem verða að gera betur á markaðnum Sænska landsliðskonan Zigiotti til liðs við Rauðu djöflana Sjáðu mörkin fjögur hjá United í nótt Sjá meira