Reyndu við 15-20 leikmenn og völdu efnilegan Íslending Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2018 12:30 Stefán Ljubicic. Heimasíða Brighton & Hove Albion
Íslenski framherjinn Stefán Ljubicic fór á milli liða á lokadögum félagsskiptagluggans en þessi átján ára strákur var þó ekki seldur. Brighton & Hove Albion lánaði unglingalandsliðsmanninn til Bognor Regis Town og er lánsamningurinn út þetta tímabil. „Við vonum að þetta gangi upp hjá okkur. Við vorum búnir að fara í gegnum á milli fimmtán til tuttugu möguleika í leit okkar að framherja en flestir þeirra vildu ekki koma og spila með okkur,“ sagði Jack Pearce, knattspyrnustjóri Bognor Regis Town í viðtali við bognor.co.uk. „Við höfum verið að ræða við Millwall, Colchester, Boreham Wood og allskonar félög og þetta hefur verið erfitt,“ sagði Pearce. „Stefán hefur spilað fjórtán sinnum fyrir íslensku unglingalandsliðin og skorað sjö mörk. Hann er 193 sentímetrar á hæð og er einmitt sá leikmaður sem þetta félag hefur verið að leita að svo lengi,“ sagði Pearce. Hann er þó eitthvað að rugla með tölfræði stráksins í landsleikjum. Stefán Ljubicic hefur skoraði 4 mörk í 13 leikjum með íslensku unglingalandsliðunum þar af 3 mörk í 5 leikjum með 19 ára landsliðinu. Stefán Alexander Ljubicic skoraði 4 mörk í 9 leikjum með átján ára liði Brighton á þessu tímabili en mörkin hans komu á móti Arsenal (1), Aston Villa (2) og Tottenham (1). Þetta er annað tímabil Stefáns hjá Brighton & Hove Albion en hann kom þangað frá Keflavík í júlí 2016. Stefán er sonur Zoran Daníels Ljubicic. Bognor Regis Town er 135 ára gamalt félag á suðurströndinni en það spilar þessa stundina í F-deild enska fólboltans sem heitir National League South.
Enski boltinn Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Guðmundur Oddsson látinn Golf Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira