Fáir leikmenn hafa bætt sig jafn mikið milli tímabila og Jóhann Berg Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. febrúar 2018 07:00 Jóhann Berg Guðmundsson í leiknum á móti Manchester City. Vísir/Getty
Burnley varð á laugardaginn aðeins fjórða liðið til að taka stig af Manchester City í ensku úrvalsdeildinni þegar þau mættust á Turf Moor. Heimamenn gátu þakkað Jóhanni Berg Guðmundssyni fyrir stigið en hann jafnaði metin í 1-1 þegar átta mínútur voru til leiksloka. Brasilíski bakvörðurinn Danilo kom City yfir á 22. mínútu en í fyrsta sinn í 26 deildarleikjum tókst liðinu ekki að vinna eftir að hafa skorað fyrsta markið. Jafntefli gegn langbesta liði ensku úrvalsdeildarinnar eru frábær úrslit fyrir Burnley, sérstaklega í ljósi þess að liðinu hefur ekki gengið vel að undanförnu. Burnley er án sigurs í síðustu níu leikjum en er þrátt fyrir það í 7. sæti deildarinnar. „Við höfum ekki unnið í nokkrum leikjum í röð en við höfum spilað erfiða leiki og náðum í stig gegn báðum Manchester-liðunum. Við höfum spilað ágætlega og þurfum bara að halda áfram,“ segir Jóhann Berg. „Við höfum verið inni í öllum leikjunum, nema gegn Tottenham á heimavelli. Við þurfum að vera þolinmóðir og við vitum að sigrarnir munu koma.“Maður leiksins hjá Sky Sports Kantmaðurinn úr Kópavoginum fékk góða dóma fyrir frammistöðu sína gegn City. Sky Sports valdi hann t.a.m. mann leiksins. Íslenski landsliðsmaðurinn var mikið í boltanum, sinnti varnarvinnunni að venju vel, skapaði þrjú færi og skoraði markið mikilvæga. Þetta var annað mark Jóhanns Berg á tímabilinu. Hitt kom í 1-2 tapi fyrir Liverpool á nýársdag. Þá, líkt og í leiknum á laugardaginn, var Jóhann Berg vel staðsettur á fjærstönginni og kláraði færið af yfirvegun. „Þetta var frábær sending hjá [Matt] Lowton. Það var erfitt að klára færið því boltinn skoppaði aðeins fyrir framan mig,“ segir Jóhann Berg um markið sitt. Ederson, markvörður City, var með hönd á bolta en náði ekki að verja. Brassinn átti annars frábæran leik í marki City og varði m.a. meistaralega frá Aaron Lennon í seinni hálfleik.Jóhann Berg Guðmundsson fagnar eftir að hafa skorað jöfnunarmark Burnley gegn Manchester City. Danilo, sem skoraði mark City, er ekki jafn ánægður með stöðu mála. Burnley er í góðri stöðu í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.vísir/getty Enginn komið að fleiri mörkum Auk markanna tveggja hefur Jóhann Berg gefið fimm stoðsendingar í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Hann hefur því komið með beinum hætti að sjö mörkum Burnley, fleiri en nokkur annar leikmaður liðsins. Burnley hefur aðeins skorað 21 mark á tímabilinu og Jóhann Berg hefur átt beinan þátt í þriðjungi þeirra sem er ansi flott tölfræði. Fáir leikmenn í ensku úrvalsdeildinni hafa bætt sig jafn mikið milli tímabila og Jóhann Berg. Hann átti ágætis spretti í fyrra en meiðsli settu strik í reikning hans. Jóhann Berg meiddist einmitt í heimaleiknum gegn City á síðasta tímabili, eftir að hafa spilað vel í nokkrum leikjum þar á undan, og komst ekki á alvöru flug eftir það. Í vetur hefur Jóhann Berg sloppið við meiðsli, spilað 25 af 26 leikjum Burnley í ensku úrvalsdeildinni og klárað þá flesta. Enginn leikmaður Burnley hefur komið við sögu í jafn mörgum deildarleikjum í vetur og Jóhann Berg. Hann er ekki bara að spila meira, heldur spila betur og er orðinn lykilmaður í liði Burnley. Auk þess að hafa átt flott tímabil með Burnley hefur Jóhann Berg aldrei spilað betur með íslenska landsliðinu en í undankeppni HM 2018. Hann er í stöðugri framþróun sem leikmaður og á vonandi enn meira inni.Vísir/Getty Ævintýrið á Turf Moor Jóhann Berg er á góðum stað og í góðum höndum hjá Burnley. Þótt strákunum hans Seans Dyche hafi gengið brösuglega að undanförnu stefnir allt í að þetta verði besta tímabil Burnley í nokkra áratugi. Liðið lenti í 6. sæti efstu deildar tímabilið 1973-74 og 10. sæti tímabilið þar á eftir. Burnley endar væntanlega á svipuðum slóðum í ár sem yrði frábær árangur. Dyche hefur gert kraftaverk með lið Burnley sem hefur bætt sig milli tímabila án þess að eyða háum fjárhæðum í leikmenn. Hið alræmda annað tímabilið er ekkert að stríða mönnum á Turf Moor. Burnley gat ekkert á útivelli í fyrra en í ár er staðan önnur. Liðið er með sjötta besta útivallarárangurinn í ensku úrvalsdeildinni og hefur náð í stig á Old Trafford, Stamford Bridge, Anfield og Wembley. Burnley hefur alls náð í 36 stig í vetur en fékk 40 stig allt síðasta tímabil. Framfarirnar eru því miklar.
Enski boltinn Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Handbolti Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Íslenski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Fleiri fréttir Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Sjá meira