Lestin sem lenti í árekstri var á röngu spori Kjartan Kjartansson skrifar 5. febrúar 2018 11:00 Slysið átti sér stað skammt frá Columbia, höfuðborg Suður-Karólínu. Vísir/AFP
Ríkisstjóri Suður-Karólínu í Bandaríkjunum segir að farþegalest Amtrak-lestarfyrirtækisins virðist hafa verið á röngu spori þegar hún rakst á flutningalest í gær. Tveir stjórnendur lestarinnar fórust og 116 manns slösuðust í slysinu. Rannsókn beinist nú að því hvort að lestinni hafi verið beint inn á rangt spor. Lestin var á leið frá New York til Míamí þegar hún rakst á flutningalestina kl. 2:35 að staðartíma. Fremstu vagnar farþegalestarinnar fóru út af sporinu við áreksturinn. Að sögn breska ríkisútvarpsins BBC eru þrír þeirra slösuðu þungt haldnir. Flestir hlutu hins vegar aðeins skrámur og beinbrot. Henry McMaster, ríkisstjóri Suður-Karólínu, segir að farþegalestin hafi verið á 95 kílómetra hraða á klukkustund og svo virðist sem að hún hafi verið á röngu spori. Flutningalestin var á réttu spori. Aðeins fimm dagar eru síðan önnur lest Amtrak átti þátt í árekstri sem kostaði einn lífið. Hópur þingmanna Repúblikanaflokksins var á ferð í annarri lestinni en þeir sluppu ómeiddir.
Tengdar fréttir Farþegalest rakst á vöruflutningalest í Suður-Karólínu Ljóst er að einhverjir hafa slasast eftir að farþegalest Amtrak, með 139 farþega um borð og átta í áhöfn, rakst á vöruflutningalest í Suður-Karólínu í morgun. 4. febrúar 2018 10:40 Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Fleiri fréttir Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Sjá meira
Farþegalest rakst á vöruflutningalest í Suður-Karólínu Ljóst er að einhverjir hafa slasast eftir að farþegalest Amtrak, með 139 farþega um borð og átta í áhöfn, rakst á vöruflutningalest í Suður-Karólínu í morgun. 4. febrúar 2018 10:40