Warnock svarar Guardiola fullum hálsi: "Mátti alveg endursýna tæklingu De Bruyne“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. febrúar 2018 17:00 Neil Warnock lætur ekki labba yfir sig. vísir/getty
Neil Warnock, knattspyrnustjóri Cardiff í ensku B-deildinni, sakaði leikmenn Manchester City um hræðilegar tæklingar á fréttamannafundi sínum í morgun og náði með því að halda á lofti fréttamálinu sem varð til eftir bikarleik liðanna í síðasta mánuði. Joe Bennett, leikmaður Cardiff, var harðlega gagnrýndur fyrir tæklingu sína á þýska landsliðsmanninn Leroy Sane en sá þýski meiddist í sex vikur vegna brotsins. Guardiola hafði mjög takmarkaðan húmor fyrir því og lét leikmenn Cardiff heyra það. Warnock sagði á fundinum í morgun að City-menn tækli nú alveg hressilega en eftir þennan leik hafi fjölmiðlamenn og aðrir aðeins einbeitt sér að hans strákum. „Ég hefði viljað sjá hæga endursýningu af tæklingu Kevin De Bruyne á Jazz Richards þar sem hann fór með sólann á undan sér,“ sagði Warnock. „Svo tæklaði Fernandinho ansi harkalega í leiknum gegn West Brom. Þar sáust nokkrar skelfilegar tæklingar en ekkert var sagt því það voru 8-9 aðrir leikir í gangi. Þennan dag sem við spiluðum við City var bara einn annar leikur og hann var lítið fyrir augað.“ Warnock er þó alveg sammála að tækling Bennett var óboðleg enda fékk leikmaðurinn að heyra það. „Ég gekk frá honum þegar að ég sá þetta. Ég sagði við að hann að eftir svona tæklingar þarf ég að upplifa þrjá daga af helvíti. Bennett baðst afsökunar og lofaði að gera þetta ekki aftur,“ sagði Neil Warnock.
Enski boltinn Mest lesið Fámennt lið Newcastle fyrst til að vinna lærisveina Carrick Enski boltinn Segir fulla innistæðu fyrir reiði Slot við leikmenn Enski boltinn Þjálfari Lakers gerir lítið úr rifrildinu við Doncic Körfubolti City missti tvisvar niður forystu gegn Forest Enski boltinn Harry Maguire sakfelldur í Grikklandi Enski boltinn Joao Pedro sá um svakalegan viðsnúning Enski boltinn Skytturnar styrktu stöðu sína á toppnum Enski boltinn „Það var í raun ekkert merkilegt, ég var ekkert að æsa mig“ Sport Orri á leið í bikarúrslitaleik Fótbolti Engin bikarþynnka hjá Haukum Handbolti Fleiri fréttir Fámennt lið Newcastle fyrst til að vinna lærisveina Carrick Joao Pedro sá um svakalegan viðsnúning Skytturnar styrktu stöðu sína á toppnum City missti tvisvar niður forystu gegn Forest Sonur Fletchers í sex leikja bann fyrir hómófóbísk ummæli Segir fulla innistæðu fyrir reiði Slot við leikmenn Harry Maguire sakfelldur í Grikklandi Svona virkar nýja rangstöðuregla Wengers Toppbaráttan: Árlegi City-skriðþunginn og brúðarmærin sem vill verða brúður Gleði og sorg í Bítlaborginni í gærkvöldi: Sjáðu mörkin Liverpool setti afar svekkjandi met Gullit er hættur að horfa á fótbolta Gagnrýndi Arsenal fyrir leik liðanna í kvöld Þema í tapleikjum Liverpool á þessu ári Mark í framlengingu framlengir bikarævintýri Port Vale Mark í uppbótartíma tryggði botnliðinu sigur gegn Liverpool Everton tengir saman sigra og Sunderland hafði betur gegn Leeds United Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Keypti Cucurella af því að Man City vildi hann Bannar leikmanni sínum að lyfta lóðum Skoða leiðir fyrir knattspyrnustjóra til að skora á dóma í enska boltanum „Niðurlægði mig fyrir framan allan heiminn“ Gakpo leit upp til Alberts „Þarna áttu bara að taka yfir leikinn“ Sesko-dagar á Old Trafford: „Vildum byggja upp sjálfstraustið hans“ Chelsea jafnaði metið sem lið Heiðars Helgu setti Ældi svakalega á völlinn en hélt svo áfram að spila „Hjartað mitt hætti næstum því að slá“ „Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Sjáðu hetjudáðir Sesko, hornamörk Arsenal og ófarir Tottenham Sjá meira