Sonur Ferguson fékk sekt fyrir að leggja til að dómararnir yrðu skotnir Tómas Þór Þórðarson skrifar 31. janúar 2018 11:00 Darren Ferguson þarf að rífa upp veskið. vísir/getty
Darren Ferguson, knattspyrnustjóri Doncaster, hefur verið sektaður um 1.000 pund eða ríflega 142 þúsund krónur fyrir að leggja það til að skjóta dómarana í C-deildinni á Englandi.. Ferguson, sem er sonur hins goðsagnakennda Sir Alex Ferguson, var gjörsamlega trylltur eftir 1-1 jafntefli Doncaster og Plymouth fyrr í mánuðinum. Þar fannst honum sérstaklega tvær ákvarðanir falla með Plymouth en hann vildi fá vítaspyrnu í leiknum. „Dómarinn sem dæmdi þann leik er að dæma aftur um helgina. Við eigum væntanlega eftir að fá aðra afsökunarbeiðni þegar að þeir sjá að þetta var klárt víti en samt verður dómarinn aftur á flautunni,“ sagði Ferguson í viðtali í vikunni eftir leikinn. „Dómararnir eru í hlutastarfi. Gæðin eru engin og þeir eru ekki í neinu formi. Ég er búinn að fá gjörsamlega nóg af þessu.“ Aðspurður hvað enska knattspyrnusambandið ætti að gera í málunum svaraði Ferguson um hæl: „Það væri góð hugmynd að skjóta þá.“ Eðlilega hafði enska sambandið lítinn húmor fyrir þessum ummælum Fergusons og er búið að sekta hann um þúsund pund, að því fram kemur á vef BBC.
Enski boltinn Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Handbolti Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Íslenski boltinn Jón Dagur skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Berlínarbúa Fótbolti Fleiri fréttir Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Sjá meira