Leikmenn enska landsliðsins stóðu heiðursvörð fyrir Scholes eftir æfingu Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. febrúar 2018 08:30 Paul Scholes kunni sitthvað fyrir sér í boltanum. getty
Kieron Dyer, fyrrverandi landsliðsmaður Englands í fótbolta, segir í nýútgefinni bók sinni að Paul Scholes, fyrrverandi leikmaður Manchester United og enska liðsins, hafi ekki verið metinn að verðleikum. Þá er hann sérstaklega að tala um veru Scholes í enska landsliðinu þar sem hann var oft látinn spila vinstra megin á miðjunni en eins og flestir vita var hann bestur í að stýra umferðinni inn á miðri miðjunni. „Við kunnum ekki að meta hann þannig við eyddum hæfileikum hans með því að láta hann dúsa úti vinstra megin. Þetta var bara óvirðing og einn helsti fótboltaglæpur sögunnar,“ segir Dyer. Hann segir ekki nokkurn vafa leika á að Scholes hafi verið framar en félagar sínir í landsliðinu; Steven Gerrard og Frank Lampard, en þessir þrír eru að flestum taldir bestu miðjumenn Englands á seinni árum. „Scholes var bestur af þessum þremur en þurfti að láta undan. Hann var algjör sérfræðingur í að nota bara eina snertingu á boltann á æfingum. Einn daginn skoraði hann þrjú eða fjögur mörk. Þá er ég ekki að tala um af stuttu færi heldur þrumuskot af 25 metrum,“ segir Dyer. „Þegar æfingin var búin stóð restin af enska landsliðinu heiðursvörð fyrir Scholes og klappaði fyrir honum er hann gekk til búningsklefa. Ég hafði aldrei séð neitt svona áður og sá heldur aldrei aftur,“ segir Kieron Dyer.
Enski boltinn Mest lesið Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Körfubolti Féll á lyfjaprófi rétt fyrir Ólympíuleika í heimalandinu Sport Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Enski boltinn Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Pytlick hafði enga lyst á pönnukökum í Ráðhúsinu Handbolti Stefán Ingi seldur til Hollands fyrir metverð Fótbolti Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Fótbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti Fleiri fréttir Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Sjá meira