Hörkutól skoska fótboltans hættulegur öðrum leikmönnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. febrúar 2018 17:30 Scott Brown. Vísir/Getty
Fyrirliði Celtic er langt frá því að vera vinsælasti leikmaður skosku deildarinnar í fótbolta enda leikmaður sem lætur andstæðinga sína finna vel fyrir sér inn á vellinum. Síðasta fórnarlamb Scott Brown var Harry Cochrane, miðjumaður Hearts-liðsins. Táningurinn spilar ekki á næstunni þökk sé hörkutóli skoska fótboltans. Cochrane meiddist á viðbeini í leik Celtic og Hearts eftir eina tæklinguna frá Brown og knattspyrnustjóri Hearts var ekki hrifinn í viðtölum eftir leik. „Ég held að það þurfi allir leikmenn að fá meiri vernd fyrir Scott Brown,“ sagði Craig Levein, knattspyrnustjóri Heart í viðtali við BBC. Scott Brown hefur fengið níu gul spjöld á tímabilinu til þessa en síðasta rauða spjaldið hans var í april. Hann hefur líka aðeins fengið eitt rautt spjald á þremur tímabilum og það þykir mörgum andstæðingum hans ótrúleg tölfræði. Hinn sextán ára gamli Harry Cochrane missir af leik Hearts um helgina en hann fór meiddur af velli eftir aðeins 38 mínútur. „Ég er búinn að horfa aftur á þetta og tel að Scott hafi ætlað að tryggja það að Harry færi ekki illa með hann eins og þegar þeir mættust síðast,“ sagði Levein. Cochrane skoraði í 4-0 sigri Hearts á Celtic fyrir áramót en verður ekki með í næstu leikjum Hearts þökk sé ruddaskap Scott Brown.Fljúgandi tækling frá Scott Brown.Vísir/Getty
Fótbolti Mest lesið Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn Íslenski boltinn KR - Valur 4-2 | Síst of stór sigur og KR áfram Íslenski boltinn Nokkrir tæpir í Grindavík sem „tala skít“ Körfubolti Cantona spreytir sig á íslenskunni Fótbolti „Á Ítalíu væri Yamal að spila í Serie B“ Fótbolti Sjö leikmenn flúðu eftir fyrsta landsleikinn í átta ár Fótbolti Valur - KA | Barist í undanúrslitum Handbolti „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Íslenski boltinn Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Enski boltinn Varla spilað fótbolta í fjögur ár en skaut Gróttu áfram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sleppur við bann eftir að hafa hrint dómara: „Algjör vanvirðing“ Tekur skóna af hillunni fyrir gamlingjabolta á Englandi Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Hetja Leeds: „Þetta eru töfrar bikarsins“ Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Chelsea flaug áfram í undanúrslit Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Enzo Fernandez verður í agabanni í næstu tveimur leikjum Chelsea Vill vera lengi hjá „stórliðinu“ Tottenham Hraunar yfir Enzo: „Farðu í burtu“ Manchester United ferðast um Norðurlöndin í sumar Isak fær að æfa með liðsfélögunum aftur Onana fær mun hærri laun ef Man. United kemst í Meistaradeildina Chelsea setti nýtt met í taprekstri Nýr stjóri Tottenham ekki velkominn hjá stuðningsmönnunum De Zerbi tekinn við Tottenham Heimsmeistara býðst að aðstoða De Zerbi Starf Howe í hættu De Zerbi opinn fyrir því að taka strax við Tottenham Þrír af hverjum fjórum stuðningsmönnum ósáttir við VAR Biðja knattspyrnukonur afsökunar Enska landsliðskonan missti fóstur Tottenham sagt vilja fá De Zerbi sem nýjan stjóra Sjá meira