Áhugamenn um óveður létust er þeir eltust við skýstrók Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar 29. mars 2017 20:39 vísir/getty
Þrír þekktir áhugamenn um óveður létust í bílslysi í Texas síðdegis í gær. Þeir höfðu verið að keyra í átt að stærðarinnar skýstrók þegar bílstjóra bifreiðarinnar, Kelley Williamsson, fyrirfórst að virða stöðvunarskyldu með þeim afleiðingum að jeppi keyrði inn í hlið bifreiðarinnar. Ökumaður jeppans, tuttugu og fimm ára gamall maður, lést einnig í slysinu. Tildrög slyssins eru að öðru leyti óljós en veðrið var slæmt og talsverð úrkoma þegar slysið varð. Mennirnir tveir, sem voru að eltast við skýstrókinn, eru Bandaríkjamönnum kunnugir úr þáttunum Storm Wranglers sem sýndir eru á Weather Channel. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem áhugamenn um óveður, svokallaðir storm chasers, látast þegar þeir sinna sínu helsta áhugamáli en árið 2013 létust þrír menn þegar þeir voru á höttunum eftir skýstróki í Oklahoma. Veðurfræðingurinn Tim Marshall sagði í samtali við New York Times að það væri þó ekki endilega veðrið sjálft sem væri mesta hættan fyrir óveðursfangara, heldur væri bílferðin hættulegri. Hann sagðist sjálfur vera mikill áhugamaður um óveður og keyrði gjarnan á vettvang til þess að berja dýrðina augum. Þegar hann legði í slíkar ferðir þætti honum þó mikilvægt að einhver annar en hann sjálfur væri við stýrið enda erfitt að láta ekki truflast. „Það er ekki eldingin eða haglið sem er mesta hættan, heldur bílarnir,“ sagði Marshall.
Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Erlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Erlent Fleiri fréttir Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Sjá meira