Bretar loka fiskimiðum sínum Ingvar Þór Björnsson skrifar 2. júlí 2017 15:13 Segir Gove að með þessu sé verið að taka aftur stjórnina. EPA
Michael Gove, umhverfisráðherra Bretlands, tilkynnti í viðtali við Andrew Marr á BBC fyrr í dag að ríkisstjórn Bretlands muni snúa baki við löggjöf frá árinu 1964 sem heimilar skipum frá Bretlandi, Frakklandi, Belgíu, Þýskalandi, Írlandi og Hollandi að veiða á milli sex og tólf sjómílna innan strandlengju hvers annars. Bretland mun því geta meinað öðrum þjóðum að veiða í fiskveiðilögsögu landsins. Segir Gove að „ með þessu sé verið að taka aftur stjórnina". Telur hann einnig að þetta muni hafa góð áhrif á umhverfið en með því að taka aftur yfir stjórn á fiskveiðilögsögunni mun það vera á ábyrgð Bretlands í meira mæli að koma í veg fyrir ofveiði og mengun innan lögsögunnar. Sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins leyfir öllum aðildarríkjum að veiða milli tólf og tvö hundruð sjómílna frá Bretlandi og setur kvóta á hversu mikinn fisk þjóðirnar mega veiða. Með því að ganga úr Evrópusambandinu mun Bretland geta stóraukið stjórn á fiskveiðilögsögunni. Samkvæmt tölum frá 2015 um sjávarútvegsiðnaðinn í Bretlandi eru um sex þúsund skip sem landa yfir 708.000 tonnum af fiski að verðmæti rúmlega 100 milljarða á ári hverju. Um tíu þúsund tonn voru veidd af skipum frá öðrum löndum að andvirði rúmlega tveggja milljarða króna. Barrie Deas, framkvæmdastjóri landssamtaka sjávarútvegsfyrirtækja í Bretlandi, fagnaði ákvörðun ríkisstjórnarinnar og sagði að þetta væri mikilvægur þáttur í því að gera Bretland að sjálfstæðu strandríki með fullveldi yfir eigin efnahagssvæði.
Mest lesið Komið að ögurstundu Erlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Erlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Veður Fleiri fréttir Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Sjá meira