Bandarískur unglingur lést af völdum mikillar koffínneyslu Atli Ísleifsson skrifar 16. maí 2017 12:51 Davis Allen Cripe.
Bandarískur táningur í Suður-Karólínu lést eftir að hafa neytt fjölda koffíndrykkja á of skömmum tíma. Þetta kemur fram í niðurstöðu dánardómstjóra í ríkinu. Hinn sextán ára Davis Allen Cripe hné niður í skóla sínum eftir að hafa á tveggja klukkustunda tímabili neytt kaffi lattes frá McDonald’s, stórs Mountain Dew gosdrykkjar og orkudrykkjar. Er það mat dánardómstjórans Gary Watts að Cripe hafi látið lífið af völdum hjartatruflana sem mátti rekja til koffínneyslu piltsins. Ekki var vitað til að hann hafi glímt við hjartasjúkdóma. Drengurinn hafi verið níutíu kíló að þyngd en hann myndi ekki flokkast sem maður í mikilli ofþyngd. Í frétt BBC er haft eftir Watts að hann segir ekki að um ofskammt koffíns hafi verið að ræða, heldur hafi mikil neysla á of skömmum tíma leitt til hjartatruflananna sem ollu dauða piltsins. Ólíklegt er að dauði Cripe hefði verið rakinn til koffínneyslunnar ef ekki hefði verið fyrir að samnemendur sem greindu sjúkraliði frá neyslu hans á drykkjunum.
Mest lesið „Hrokafull afstaða“ að skilyrða stuðning við Úkraínu Erlent Sorg í Neskaupstað vegna andláts barns Innlent Fiskikóngurinn segir atvinnurekendur aumingja Innlent Friðjón svarar Steinunni fullum hálsi Innlent Stúkan óviðgerðarhæf og jafnvel hættuleg Innlent „Skítaskilaboð“ forsetaframbjóðenda til Úkraínumanna Innlent „Var þetta í alvöru nafnið mitt sem þau kölluðu?“ Innlent Hefði verið auðvelt að koma í veg fyrir banaslysið Innlent Engir ytri áverkar sem skýra andlátin Innlent Sá fyrsti til að greinast með H5N2 lést af völdum veirunnar Erlent Fleiri fréttir Fyrstu úrslit Evrópukosninga staðfesta uppgang fjarhægrisins Tengdi stríðið í Úkraínu við baráttuna gegn fasismanum Frægs sjónvarpslæknis leitað Vill brottvísa hælisleitendum sem fremja alvarlega glæpi Stefnir í óefni náist samningar ekki í bráð Lést á leið til Normandí 80 árum eftir D-dag Göngugarpur uppljóstrar að hæsti foss Kína er buna úr röri Tvær ákærur bætast við í máli Rex Heuermann Leit Trump að varaforsetaefni að komast á skrið „Hrokafull afstaða“ að skilyrða stuðning við Úkraínu Fjórir létust í lestarslysi í Tékklandi Trump líklega sviptur byssuleyfinu í kjölfar dómsins Áttatíu ár frá innrásinni í Normandí Sá fyrsti til að greinast með H5N2 lést af völdum veirunnar Hótar því að sjá öðrum fyrir vopnum til að gera árásir á Vesturlönd Að minnsta kosti 30 látnir og tugir særðir í árásum á skóla Segir stjórnarandstöðuna hafa kynt undir hatri árásarmannsins Biden herðir tökin á landamærum í aðdraganda kosninga Konunglegri heimsókn frestað vegna verkfallsins Búa sig undir holskeflu upplýsingafals í kringum Evrópukosningar Amanda Knox dæmd fyrir meiðyrði þrettán árum eftir sýknu Þekktur sænskur rappari skotinn til bana Stunguárás á fulltrúa þýsks fjarhægriflokks Sunak og Starmer tókust á um skatta, útlendingamál og NHS Ráðleggja gegn samþykkt MDMA sem meðferð við áfallastreituröskun Hillur að verða tómar í Færeyjum og ekkert samkomulag í augsýn Narendra Modi lýsir yfir sigri á Indlandi Þúsundir heimilislausra fluttir frá París í aðdraganda Ólympíuleika Réttarhöld yfir syni Biden hafin Fékk mjólkurhristing í andlitið við upphaf kosningabaráttunnar Sjá meira