Hönd í hönd á sólarströnd: Strandgestir björguðu fjölskyldu Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 11. júlí 2017 19:23 Á ströndinni við Panama-borg í Flórída kom fjöldi fólks fjölskyldu til bjargar. Vísir/Getty
Gestir á ströndinni við Panama-borg í Flórída tóku höndum saman og björguðu fjölskyldu frá drukknun með því að mynda „mennska keðju.“ Frá þessu er greint á vef breska ríkisútvarpsins. Jessica Mae Simmons greindi frá örlagararíkri strandferð með manninum sínum á Facebook síðunni sinni. Þau höfðu í hyggju að slaka á og ætluðu þau sér að borða í rólegheitum á ströndinni. Fljótlega varð þeim ljóst að ekki var allt með felldu. Heil fjölskylda hafði lent í útsogi en útsogsstraumurinn togaði fjölskylduna langt út í sjó og var fólkið hætt komið þegar strandgestirnir náðu til þeirra. Simmons, kærasti hennar og vinir höfðu hvatt fólk til þess að taka sér stöðu hlið við hlið til þess að mynda mennska keðju til þess að bjarga fjölskyldunni frá drukknun. Simmsons segir þetta hafa verið ótrúlega upplifun og talar um sigur mannsandans. Á ströndinni hafi fólk af ýmsum kynþáttum og kynjum komið saman og hætt lífi sínu fyrir ókunnuga. Fólkið gekk beint í ægiháar öldurnar og kom fólkinu, sem var búið að gefa alla von upp á bátinn, til bjargar. Frú Ursey, móðirinn sem lenti í útsoginu, segist ævinlega þakklát bjargvættunum því án þeirra væri hún og fjölskylda hennar ekki á lífi.Samvinna og manngæska urðu fjölskyldunni til lífs.Vísir/Getty
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Sjá meira