Neymar fær 13 milljónir í laun á dag og lífverði allan sólarhringinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. september 2017 13:15 Neymar. Vísir/Getty
Það þarf ekki að koma neinum á óvart að ástæða þess að Brasilíumaðurinn Neymar er orðinn leikmaður franska liðsins Paris Saint-Germain er ekki aðeins sú að hann gæti losnað undan skugga Lionel Messi. Evrópsku miðlarnir fjalla um leka frá Football Leaks um samninginn sem Neymar gerði við Paris Saint-Germain en Der Spiegel, Paris Match og Marca skrifa öll um málið. Samkvæmt þeim upplýsingum þá fær Neymar 3.069.520 evrur í mánaðarlaun sem þýðir að hann er að fá fjögur þúsund evrur á klukkutímann og hundrað þúsund evrur í laun á dag. Það gerir tæpar þrettán milljónir íslenskra króna í laun á dag. Það er þó ekki það eina sem kemur fram því franska félagið er líka umhugsað um öryggi stjörnuleikmannsins síns. Neymar er nú fluttur inn í risa hús í París sem er níu kílómetrum frá æfingasvæði PSG og fjórtán kílómetrum frá heimavellinum Parc des Princes. Leigan á húsinu er aðeins fjórtán þúsund evrur á mánuði en það eru bara smáaurar fyrir mann á svona launum. Franska félagið sér til þess að það eru öryggisverðir við húsið allan sólarhringinn. Þangað kemst því enginn inn sem ekki á þangað erindi. Það þarf heldur ekkert að kvarta yfir byrjun Neymar með liði Paris Saint-Germain en hann er þegar kominn með fimm mörk og fimm stoðsendingar á tímabilinu. Eina vandamálið er kannski opinbert rifildi Neymar við liðsfélaga sinn Edinson Cavani í miðjum leik um hvor þeirra ætti að taka vítaspyrnu í síðasta leik.
Fótbolti Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson „Óboðleg frammistaða í fyrri hálfleik“ „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Orri hetjan í fyrsta sigrinum Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Martröð Alberts og félaga í upphafi leiktíðar Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ „Allt liðið sem og félagið í heild stigið upp“ Campbell skoraði í góðum sigri nýliðanna Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Hlín með þrennu í öruggum sigri Malmö Ari var á skotskónum og tryggði Elfsborg í Evrópusæti Íslendingaliðið Kristianstad sótti öll þrjú stigin Uppgjörið: Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0 | Annar sigur Víkings spyrnti liðinu frá botninum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Emelía og félagar enn með fullt hús stiga Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Sjá meira