Ástrali hlaut 22 ára dóm fyrir árás á tvo bakpokaferðalanga Atli Ísleifsson skrifar 17. maí 2017 08:57 Roman Heinze getur fyrst sótt um reynslulausn eftir sautján ár. Facebook
Domstóll í Ástralíu hefur dæmt 61 árs karlmann í 22 ára fangelsi fyrir að ráðast á tvo bakpokaferðalanga á afskekktri strönd. Í frétt BBC kemur fram að Roman Heinze hafi bundið og brotið kynferðislega gegn brasilískri konu áður en hann ók á þýska vinkonu hennar í Suður-Ástralíu á síðasta ári. Konurnar eru báðar 24 ára að aldri. Maðurinn var jafnframt dæmdur fyrir árás á annan bakpokaferðalang árið 2014. Dómarinn sagði Heinze „gjörsamlega siðspilltan“ og að hann hafi skaðað orðspor Ástralíu sem öruggs og vinalegs áfangastaðar fyrir ferðamenn. Heinze hafði komist í samband við konurnar þegar hann svaraði þýsku konunni sem hafði birt auglýsingu á netsíðunni Gumtree þar sem hún auglýsti eftir bílfari frá Adelaide til Melbourne. Maðurinn ók konunum að ströndinni við Salt Creek þar sem þau komu upp tjaldi. Á meðan þýska konan sofnaði í bíl Heinze fór hann með brasilísku konuna á stað á ströndinni þar sem hann sagði hana geta séð kengúrur. Þar batt hann úlnliði og ökkla konunnar, skar bikini hennar af með hníf, sló og beitti hana kynferðisofbeldi. Þýska konan vaknaði svo við óp hinnar brasilísku og reyndi að stöðva manninn sem sló hana þá með hamri. Við það reyndi þýska konan að flýja, en Heinze fór upp í bíl sinn og keyrði utan í hana. Veiðimenn sem heyrðu öskur brasilísku konunnar komu svo á staðinn og höfðu samband við lögreglu. Heinze getur fyrst sótt um reynslulausn eftir sautján ár. Hann hefur ákveðið að áfrýja dómnum.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Sjá meira