Chelsea verður meistari með sigri í kvöld | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. maí 2017 11:30
Chelsea getur tryggt sér sjötta Englandsmeistaratitilinn í sögu félagsins með sigri á West Brom á The Hawthornes í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:00 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD. Chelsea er sjö stigum á undan Tottenham þegar bæði lið eiga þrjá leiki eftir. Lærisveinar Antonios Conte eru með pálmann í höndunum og dugir einn sigur úr síðustu þremur leikjunum til að tryggja sér titilinn. Eftir tapið fyrir Manchester United á Old Trafford setti Chelsea í fluggírinn og hefur unnið síðustu þrjá leiki sína með markatölunni 10-2. West Brom hefur gefið mikið eftir að undanförnu og aðeins náð í tvö stig í síðustu sex leikjum sínum. Liðið situr í 8. sæti deildarinnar. Í hinum leik kvöldsins, sem hefst klukkan 18:45, mætast Everton og Watford á Goodison Park. Everton hefur gengið allt í haginn á heimavelli í vetur. Strákarnir hans Ronalds Koeman hafa unnið 12 af 18 leikjum sínum á Goodison Park og náð í 40 stig þar. Með sigri í kvöld slær Everton stigamet félagsins á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni. Everton er í 7. sæti deildarinnar og endar þar sama hvernig síðustu tveir leikir liðsins fara. Watford er í 15. sætinu en liðið hefur tapað síðustu þremur leikjum sínum með markatölunni 0-6.
Enski boltinn Mest lesið Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn „Það var ekkert í heiminum að fara breytast“ Sport Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Enski boltinn „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti Real Madrid goðsögn fallin frá Fótbolti Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Handbolti Fleiri fréttir „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Sjá meira