Hasseilbaink segir Chelsea-liðið í dag betra en liðið sem hann og Eiður Smári spiluðu með Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. maí 2017 18:09 Jimmy Floyd Hasselbaink fór yfir muninn á Chelsea-liðinu 2002 og 2017. mynd/skjáskot
Chelsea getur orðið Englandsmeistari í kvöld þegar liðið mætir West Bromwich Albion í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Leikurinn hefst klukkan 19.00 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD. Í tilefni þess var sjónvarpsþátturinn Soccer AM á sky Sports með sérstaka Facebook Live-upphitun í beinni útsendingu frá bar í Lundúnum þar sem stuðningsmenn Chelsea mættu og hituðu upp með Jimmy Floyd Hasselbaink, fyrrverandi framherja liðsins. Hasselbaink myndaði frábært framherjapar með Eiði Smára Guðjohnsen hjá Chelsea upp úr aldamótum en margir stuðningsmenn liðsins minnast þeirra sem eins besta framherjapars í sögu liðsins. Upp á sitt besta voru þeir nánast óstöðvandi. Hasselbaink var beðinn um að fara yfir muninn á Chelsea-liðinu sem spilaði bikarúrslitaleikinn á móti Arsenal árið 2002 og svo Chelsea-liðinu hans Antonio Conte sem getur orðið Englandsmeistari í kvöld. Chelsea tapaði umræddum úrslitaleik, 2-0. Sá hollenski segir liðið í dag vera betra. „Við vorum með mjög gott lið og góða einstaklinga. Við spiluðum líka öðruvísi kerfi en Chelsea-liðið í dag er betra,“ segir Jimmy Floyd Hasseilbaink. Hann fékk svo nokkrar spurningar í beinni útsendingu og ein þeirra var hver var mesta partíljónið. Hann sagðist ekki vilja nefna nein nöfn og henda mönnum undir rútuna. Innslagið með Jimmy Floyd má sjá í spilaranum hér að neðan.
Enski boltinn Mest lesið Leik lokið: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig Íslenski boltinn Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Enski boltinn Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Enski boltinn Chelsea - Brighton 4-3 | Dramatískur markaleikur á brúnni Enski boltinn FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Íslenski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Emin sigraði með rothöggi og er enn taplaus Sport Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Fótbolti Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Enski boltinn Fleiri fréttir Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Chelsea - Brighton 4-3 | Dramatískur markaleikur á brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Sjá meira