Gæti misst af enn einum bikarúrslitaleiknum hjá Arsenal Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. maí 2017 08:00 Alex Oxlade-Chamberlain meiddist í gær. Vísir/Getty
Alex Oxlade-Chamberlain fór meiddur af velli í gærkvöldi þegar Arsenal vann 2-0 sigur á Southampton en Skytturnar héldu þá Meistaradeildardraumum sínum á lífi. Oxlade-Chamberlain tognaði aftan í læri og yfirgaf völlinn eftir aðeins 36 mínútna leik. Nú eru aðeins sextán dagar í bikarúrslitaleikinn á móti Chelsea og sé tognunin alvarleg þá gæti Oxlade-Chamberlain misst af leiknum á Wembley. Það sem gerir þá staðreynd enn dapurlegri fyrir Uxann er að hann hefur misst af tveimur bikarúrslitaleikjum hjá Arsenal á síðustu árum. Telegraph segir frá. Oxlade-Chamberlain var meiddur í bikarúrslitaleiknum 2014 og komst ekki í byrjunarliðið í úrslitaleiknum árið síðar. Hann fékk reyndar að koma inná á 90. mínútu í þeim leik þegar Arsenal vann 4-0 sigur á Aston Villa. „Þetta er tognun aftan í læri en við vitum ekki hversu slæmt þetta er. Ég veit ekki hvernig verður með bikarúrslitaleikinn. Hann labbar eðlilega og var frekar stífur en eitthvað annað. Þetta er kannski meira þreyta en það er erfitt að dæma þetta svona skömmu eftir að þetta gerist,“ sagði Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal eftir leikinn í gær. Oxlade-Chamberlain fer í rannsóknir á næstu tveimur sólarhringum og þá kemur í ljós hvort að hann verði lengi frá eða ekki. Oxlade-Chamberlain hefur verið að spila sem hægri vængbakvörður að undanförnu en var líka inn á miðjunni á þessu tímabili sem er hans óskastaða. Hans framtíð í Arsenal er líka í uppnámi enda Oxlade-Chamberlain ekki búinn að endurnýja samning sinn sem rennur út á næsta ári. Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, vill fá hann í sumar og Þjóðverjinn vill nota Oxlade-Chamberlain meira inn á miðjunni. Það gæti hljómað spennandi fyrir þennan 23 ára gamla leikmann.
Enski boltinn Mest lesið Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport Ancelotti viðurkennir mistök í drykkjarhléi gegn Noregi á HM Fótbolti „Verður skrýtið að sjá hann standa hinu megin“ Fótbolti Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Fótbolti Fleiri fréttir Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Varamarkvörður City verður einn dýrasti markvörður sögunnar „Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Sjá meira