Tala látinna í Mogadishu í 358 Samúel Karl Ólason skrifar 20. október 2017 23:35 Þúsundir Sómala komu saman við árásarstaðinn í dag til að biðja fyrir þeim sem fórust. Vísir/AFP
Tala látinna eftir sprengjuárásina í Mogadishu þann 14. október er nú komin í 358 og er 56 enn saknað. Yfirvöld kenna hryðjuverkasamtökunum al-Shabab, sem eru bandamenn al-Qaeda, um árásina en talsmenn samtakanna þvertaka fyrir að hafa framið hana. Sendiferðabíll hlaðinn sprengiefnum var sprengdur í loft á fjölförnum gatnamótum. Við hlið bílsins var olíuflutningabíll sem sprakk einnig og stækkaði þannig sprenginguna. Nærliggjandi hús hrundu og myndaðist mikið eldhaf. Minnst 228 eru særðir, samkvæmt frétt BBC.Talið er að samtals hafi verið 600 til 800 kíló af sprengiefnum í bílnum. Ekki er víst hvort að gatnamótin hafi verið ætlað skotmark árásarmannanna, en mögulegt þykir að ökumaðurinn hafi sprengt bílinn í loft upp eftir að hermenn skutu á bílinn og sprengdu eitt dekk hans. Stjórnvöld Sómalíu hafa kallað eftir blóðgjöfum frá almenningi. Þúsundir Sómala komu saman við árásarstaðinn í dag til að biðja fyrir þeim sem fórust.Samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar mun Mohamed Abdullahi Mohamed, forseti Sómalíu, lýsa yfir allsherjar stríði gegn al-Shabab og stendur til að það hefjist á morgun. Nú þegar eru um tuttugu þúsund hermenn Afríkusambandsins í Sómalíu að hjálpa heimamönnum við að ráða örlögum samtakanna sem eru mjög virk í suðurhluta landsins.Þá segja yfirmenn í sómalska hernum að Bandaríkin muni einnig hjálpa til gegn hryðjuverkasamtökunum. Hernaðaryfirvöld Bandaríkjanna tilkynntu í dag að drónaárásir hefðu verið hafnar að nýju gegn vígamönnum al-Shabab.
Mest lesið Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Langreyðarnar komnar á land Innlent „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ Innlent Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið Innlent Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Innlent Rauðar viðvaranir í Bretlandi vegna hita Veður Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Innlent Fleiri fréttir Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Sjá meira