Enski boltinn settur til höfuðs X Factor og heilar umferðir sýndar Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. desember 2017 08:30 Vísir/Getty
Stórar breytingar verða á sýningarétt ensku úrvalsdeildarinnar frá og með tímabilinu 2019-2020 en útboði á næsta pakka lýkur í febrúar. Þetta kemur fram í The Telegraph í dag. Nú bætast við leikir á laugardagskvöldum og þá verða heilar umferðir sýndar nokkrum sinnum yfir tímabilið en búist er við tilboðum frá netrisunum Amazon og Facebook. Enski boltinn verður settur til höfuðs vinsælum kvöldþáttum á laugardögum í Bretlandi eins og Strictly Come Dancing og The X Factor en forsvarsmenn ensku úrvalsdeildarinnar fengu grænt á þetta fyrr á árinu. Átta leikir verða á laugardagskvöldum en úrvalsdeildin stefnir að því að fá meira en þær 5,14 milljarða punda sem Sky Sports og BT Sport borguðu fyrir síðasta sýningarétt í Bretlandi. Í heildina verða sýndir 200 leikir af 380 í Bretlandi sem er 42 prósent meira en núna en þrívegis yfir tímabilið verða allir leikir sýndir þegar umferðir eru í miðri viku. Leikirnir 200 skiptast niður í sjö pakka sem má sjá hér að neðan.Pakki A: 32 leikir á laugardögum klukkan 12.30Pakki B: 32 leikir á laugardögum klukkan 17.30Pakki C: 32 leikir á sunnudögum klukkan 14.00 og 8 leikir á laugardagskvöldum klukkan 19.45Pakki D: 32 leikir á sunnudögum klukkan 16.30Pakki E: 24 leikir á mánudögum eða föstudögum klukkan 19.30 eða 20.00 og 8 leikir á sunnudögum klukkan 14.00Pakki F: 20 leikir frá heilli umferð á mánudagsfrídegi eða umferð í miðri vikuPakki G: 20 leikir frá tveimur umferðum í miðri viku
Enski boltinn Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Íslenski boltinn Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Enski boltinn PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Fleiri fréttir Tottenham - Newcastle | Bæði lið leitast eftir fyrsta sigrinum Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Sjá meira