Yfirmenn lögreglu og leyniþjónustu reknir vegna árása Samúel Karl Ólason skrifar 29. október 2017 23:13 Í dag tókst öryggissveitum að binda enda á umsátur á hóteli í Mogadishu þar sem 23 létu lífið. Vísir/AFP
Yfirvöld í Sómalíu hafa rekið yfirmenn lögreglu og leyniþjónustu landsins eftir mannskæðar árásir undanfarinna vikna. Í dag tókst öryggissveitum að binda enda á umsátur á hóteli í Mogadishu þar sem 23 létu lífið. Fyrir tveimur vikum dóu 358 manns í gríðarstórri sprengingu á fjölförnum gatnamótum. Árásirnar hafa dregið úr trausti borgara á yfirvöld og getu þeirra til að verja höfuðborgina gegn árásum vígamanna og þá sérstaklega vígamanna al-Shabab hryðjuverkasamtakanna, sem hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni um helgina. Árásin hófst þegar sendiferðabíll var sprengdur fyrir utan Nasa-Hablod hótelið og réðust vígamenn, vopnaðir árásarrifflum, handsprengjum og sprengjuvestum, til atlögu í kjölfar sprengingarinnar. Þrír vígamenn voru felldir í dag og tveir handsamaðir, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar.Umrætt hótel er vinsælt meðal yfirmanna hersins og háttsettra stjórnmálamanna. Alim Aliyow, ráðherra rafmagns og vatns, var bjargað af hótelinu í bardögum í dag. Yfirmaður í hernum segir að meðal þeirra sem dóu hafi verið móðir og þrjú börn. Öll hafi þau verið skotin í höfuðið. Þar að auki voru háttsettur meðlimur lögreglunnar, fyrrverandi þingmaður og fyrrverandi ráðherra myrtir. Þrátt fyrir að al-Shabab hafi lýst yfir ábyrgð á árásinni um helgina segjast samtökin ekki hafa gert árásina fyrir tveimur vikum.Sjá einnig: Tala látinna í Mogadishu í 358AP segir sérfræðinga telja að samtökin hafi ekki viljað lýsa yfir ábyrgð vegna þess hve margir almennir borgarar létu lífið. Þá var sendiferðabíll hlaðinn um 600 til 800 kílóum sprengdur í loft upp við hlið olíuflutningabíls. Ekki er víst hvort að gatnamótin hafi verið ætlað skotmark árásarmannanna, en mögulegt þykir að ökumaðurinn hafi sprengt bílinn í loft upp eftir að hermenn skutu á bílinn og sprengdu eitt dekk hans.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira