Er þetta kannski örlagavaldur Liverpool og Arsenal á tímabilinu? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. október 2017 20:00 Alex Oxlade-Chamberlain og Jürgen Klopp. Vísir/Getty
Það er mikill munur á gengi ensku liðanna Liverpool og Arsenal í ágúst og september. Eftir að Liverpool keypti einn leikmann Arsenal í lok ágúst snérist gengi beggja liða algjörlega við. Alex Oxlade-Chamberlain horfði upp á Liverpool yfirspila Arsenal í síðasta leik sínum í búningi Arsenal. Nokkrum dögum síðar þá keypti Liverpool Oxlade-Chamberlain fyrir 35 milljónir punda. Þegar Alex Oxlade-Chamberlain mætti til Bítlaborgarinnar þá var Liverpool-liðið búið að vinna fjóra leiki í röð í deild og forkeppni Meistaradeildarinnar með markatölunni 11-3 og allt leit frábærlega út. Á sama tíma hafði Arsenal-liðið tapað tveimur deildarleikjum í röð án þess að skora mark, fyrst 1-0 á móti Stoke og síðan 4-0 á móti Liverpool. Liverpool tapaði fyrsta leiknum sínum með Alex Oxlade-Chamberlain 5-0 á móti Manchester City og hefur aðeins unnið 1 af 7 leikjum í öllum keppnum síðan að hann kom á Anfield. Arsenal hefur aftur á móti unnið 6 af 7 leikjum sínum og ekki enn tapað síðan að félagið seldi Alex Oxlade-Chamberlain til Liverpool. Það má sjá þetta svart á hvítu í samantekt Genius Football hér fyrir neðan.Since Chamberlain moved to Liverpool: 0-5 2-2 1-1 0-2 3-2 1-1 1-1 Arsenal 3-0 3-1 0-0 1-0 2-0 4-2 2-0 pic.twitter.com/CsK4xuUAmY — GeniusFootball (@GeniusFootball) October 2, 2017 Það lítur því út fyrir að Alex Oxlade-Chamberlain sé örlagavaldur Liverpool og Arsenal. Það er reyndar erfitt að kenna manni um sem var varamaður á báðum stöðum en þetta lítur ekki út fyrir kappann. Það er allavega ljóst að gengi beggja liða hefur gerbreyst síðan að Oxlade-Chamberlain hafði vistaskipti.
Enski boltinn Mest lesið Lamine Yamal í vandræðum eftir afmælisveisluna sína Fótbolti Már klessti á bakkann og HM er í hættu Sport Mistök að ráða ekki Betu og „er ekki talað hávært um Óla Kristjáns“ Fótbolti Sjáðu slagsmálin í lok úrslitaleiks HM félagsliða Fótbolti Fjögur lið sýnt LeBron áhuga Körfubolti Trump vildi ekki fara af verðlaunapallinum Fótbolti NFL goðsögn féll frá um helgina Sport Systkinin leikjahæst: „Heiður að taka fram úr alvöru goðsögnum“ Íslenski boltinn Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Enski boltinn Leikmannasamtökin fengu ekki að mæta á fund um velferð leikmanna Fótbolti Fleiri fréttir Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Óvissan tekur við hjá Hákoni Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Umboðsmaður með Íslandstengingu sakaður um að nauðga konu í sex ár Taka tíuna af Rashford og segja honum að vera lengur í sumarfríi Slot um Jota: Vinur allra og átti draumasumar sem gerir þetta enn sorglegra Michael Edwards og Richard Hughes senda frá sér yfirlýsingu vegna Jota Sjá meira