Ófremdarástand í flóttamannamálum á Ítalíu Ingvar Þór Björnsson skrifar 1. júlí 2017 23:15 Ítölsk yfirvöld hafa hótað að meina skipum með flóttamönnum aðgang að höfnum landsins. EPA
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna telur að Ítalía þurfi mun meiri stuðning við að taka á móti flóttamönnum. BBC greinir frá. „Það sem er að gerast á Ítalíu núna er að verða að harmleik,“ segir Filippo Grandi, formaður stofnunarinnar. „Það er ekki einungis á ábyrgð ítalskra yfirvalda að koma með lausn á vandanum.“Síðastliðinn fimmtudag lofaði Dimitris Avramopoulus, framkvæmdastjóri innflytjendamála hjá Evrópusambandinu að Ítalía fengi meiri fjárhagsstuðning frá sambandinu. Einnig hvatti hann aðildarríki til að sýna meiri samstöðu. Innanríkisráðherrar Frakklands, Þýskalands og Ítalíu hyggjast ræða málið á fundi sínum á morgun í París. Grandi segir að 12.600 flóttamenn og hælisleitendur hafi komið til Ítalíu síðustu helgi. Þá nefnir hann einnig að 83.650 manns hafi komið til Ítalíu yfir Miðjarðarhafið frá byrjun árs en það er fjölgun um 20% frá sama tímabili í fyrra. Talið er að 2.030 manns hafi látist á ferðum sínum yfir Miðjarðarhafið það sem liðið er af ári. Meirihluti þeirra flóttamanna sem koma þessa leiðina til Ítalíu koma frá Lýbíu en Lýbía er gjarnan kölluð „gáttin til Evrópu" fyrir flóttamenn frá fjölmörgum löndum. Ítalskir björgunarstarfsmenn flytja lík níu flóttamanna sem fundust látnir í björgunaraðgerð í dag.EPA
Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Fleiri fréttir Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Sjá meira