Moyes gæti tekið við Skotlandi 8. júní 2017 11:15 Moyes í sínum síðasta leik sem stjóri Sunderland. vísir/getty
Svo gæti farið að David Moyes verði næsti landsliðsþjálfari Skotlands, ef marka má frétt The Times um málið í dag. Samkvæmt blaðinu mun Moyes vera efstur á óskalista skoska knattspyrnusambandsins til að taka við Gordon Strachan, en staða hans sem þjálfari skoska liðsins er sögð afar viðkvæm. Strachan gæti misst starfið sitt ef að Skotland tapar fyrir Englandi í undankeppni HM 2018 á heimavelli á laugardag. Skotland er í fjórða sæti í F-riðli í undankeppninni með sjö stig. Skotland hefur unnið Slóveníu og Möltu, gert jafntefli við Litháen en tapað fyrir Slóvakíu og Englandi. Staða Strachan þótti tæp í vetur en hann hélt starfinu sínu eftir að Chris Marten tryggði Skotum 1-0 sigur á Slóveníu í mars með marki undir lok leiksins. Moyes náði góðum árangri með Everton á sínum tíma en fór þaðan til að taka við Manchester United þegar Sir Alex Ferguson lét af störfum. Hann entist stutt þar og hefur síðan þjálfað Real Sociedad og Sunderland án mikils árangurs. Sunderland féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor en Moyes hætti þar sem forráðamenn félagsins voru ekki reiðubúnir að ganga að hans kröfum um hversu miklum fjármunum ætti að veita í liðið á næsta tímabili.
Enski boltinn Tengdar fréttir Moyes hættur hjá Sunderland Sunderland er í stjóraleit en David Moyes sagði upp störfum hjá félaginu nú síðdegis. 22. maí 2017 16:14 Moyes segir orðsporið í lagi þrátt fyrir fallið Sunderland er á botni ensku úrvalsdeildarinnar og spilar í B-deildinni næsta vetur. 15. maí 2017 17:00 Mest lesið Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Körfubolti „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Íslenski boltinn Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Fótbolti „Sagt að mér gæti blætt út“ Sport Frank Mill er látinn Fótbolti Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins Körfubolti Fleiri fréttir Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Sjá meira
Moyes hættur hjá Sunderland Sunderland er í stjóraleit en David Moyes sagði upp störfum hjá félaginu nú síðdegis. 22. maí 2017 16:14
Moyes segir orðsporið í lagi þrátt fyrir fallið Sunderland er á botni ensku úrvalsdeildarinnar og spilar í B-deildinni næsta vetur. 15. maí 2017 17:00