Treysta varnir neyðarfrægeymslu eftir vatnsleka Kjartan Kjartansson skrifar 20. maí 2017 18:34 Alþjóðlega frægeymslan á Svalbarða þar sem vatnsleki kom upp í haust. Vísir/EPA
Norsk stjórnvöld ætla styrkja varnir í neyðarfrægeymslu sem þau reka á Svalbarða eftir vatnsleka sem kom upp í fyrra. Geymslunni er ætlað að varðveita fræ nytjaplantna frá öllum heiminum ef til hörmunga kemur. Engin fræ eyðilögðust í vatnslekanum sem átti sér stað í október í fyrra samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Engu að síður stendur nú til að koma upp nýjum vatnsheldum veggjum og frárennslisskurðum fyrir utan geymsluna. Geymslan er grafin djúpt inni í fjalli á Spitsbergen, stærstu eyja Svalbarðaeyjaklasans. Henni var valinn staður þar vegna þess að sífrerinn sem umlykur hana var talinn varanlegur, að sögn Hege Njaa Aschim, talskonu norsku ríkisstjórnarinnar.Sífrerinn bráðnaði í óvanalegum hlýindumÓvanaleg hlýindi síðasta haust ollu því hins vegar að sífrerinn bráðnaði og vatn flæddi inn í göng við inngang geymslunnar. Hitastigið á þeim árstíma er yfirleitt um -10°C en var þess í stað í kringum frostmark. Meðalhitinn á Spitsbergen undir lok síðasta árs var um 7°C hærri en vanalega, samkvæmt frétt The Guardian. „Þetta var eins og vott sumar í Noregi,“ sagði Aschim við BBC. Fræ um fimm þúsund tegunda eru geymd á Svalbarða, frosin og þurrkuð. Geymslan er varahirsla fyrir önnur lönd ef til hörmunga kemur sem eyða nytjaplöntum.Fræ borin inn í geymsluna á Svalbarða. Alls eru fræ um 5.000 nytjaplantna varðveitt þar fyrir mögulegum hörmungum framtíðarinnar.Vísir/EPA
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Sjá meira