Hýddir fyrir samkynhneigð Samúel Karl Ólason skrifar 23. maí 2017 11:12 Mennirnir fengu 83 högg hvor. Vísir/AFP
Tveir menn sem höfðu verið dæmdir fyrir samkynhneigð samkvæmt Sharia-lögum voru hýddir opinberlega í Indónesíu í nótt. Þetta er fyrsta mál sinnar tegundar í landinu en mennirnir eru frá Acheh-héraði, sem þykir mjög íhaldssamt og er eina svæði landsins sem fylgir Sharia-lögum. Mennirnir tveir, sem eru 20 og 23 ára gamlir, voru leiddir á svið fyrir framan þúsundir manna sem bauluðu og hrópuðu óyrðum að þeim, samkvæmt AFP fréttaveitunni. Þeir höfðu verið dæmdir til 83 högga með staf, en tvö högg voru dregin frá vegna þess hve lengi þeir hafa verið í varðhaldi. Áður en mennirnir voru leiddir á svið sagði meðlimur klerkaráðs Ache, Abdul Gani Isa, að mennirnir ættu að þjóna almenningi sem viðvörun. Hann sagði refsingar eftir Sharia-lögum vera vel ígrundaðar og að þær brytu ekki gegn mannréttindum.Auknir fordómar Mennirnir tveir voru handteknir saman í mars þegar sjálfskipaðir löggæslumenn ruddust inn í hús þar sem þeir hittust. Þá voru birt myndbönd af árásinni þar sjá mátti árásarmennina berja mennina og sparka í þá. Annar þeirra lá þá nakinn í gólfinu. Sharia-lög voru sett á í Ache héraði árið 2001, eftir samkomulag á milli yfirvalda þar og ríkisstjórnar landsins, sem ætlað var að binda endi á langvarandi uppreisn í héraðinu. Kynlíf samkynhneigðra var svo bannað fyrir tveimur árum, en það er hvergi annars staðar bannað í Indónesíu. AFP segir að undanfarið ár hafi fordómar í garð LGBT-fólks aukist verulega í Indónesíu. Ráðherrar, trúarleiðtogar og aðrir hafa ítrekað fordæmt samkynhneigð opinberlega.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Fleiri fréttir Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Sjá meira