Unnendur sushi varaðir við hættu vegna mögulegra sníkjudýra Atli Ísleifsson skrifar 12. maí 2017 12:39 Sýkingin verður þegar menn neyta sýktra lirfa með hráum fiski eða smokkfiski. Vísir/Getty
Breskir læknar hafa varað unnendur sushi við þá hættu sem stafar af sníkjudýrum sem geta fundist í hráum og lítið elduðum fiski. Segja þeir að aukin sushi-neysla skýri fjölgun tilfella anisakíusýkingar á Vesturlöndum.BBC greinir frá niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem birtast í British Medical Journal Case Reports. Þar kemur fram að auknar vinsældir sushi á Vesturlöndum kunni að skýra aukningu sýkinga í mannfólki af völdum sníkjudýra. Læknarnir rannsökuðu 32 ára mann í portúgölsku höfuðborginni Lissabon sem hafði þjáðst af magaverkjum, uppköstum og hita um viku skeið. Í þörmum mannsins fundust lirfur sníkjudýra.Læknarnir segja að flest tilfelli anisakíusýking hafi til þessa komið upp í Japan, en tilfellum í Evrópu hefur farið fjölgandi.BMJ Case ReportsBlóðrannsókn sýndi fram á væga bólgu og svæðið fyrir neðan rifbein hans reyndist aumt. Það var fyrst eftir að maðurinn sagðist hafa neytt sushi sem læknum tók að gruna að hann þjáðist af anisakíusýkingu (e. anisakiasis) sem má rekja til hringorma sem ráðast á maga- eða þarmaveggi í mönnum. Í frétt BBC segir að sýkingin verði þegar menn neyti sýktra lirfa með hráum fiski eða smokkfiski. Læknarnir segja að flest tilfelli anisakíusýkingar komi upp í Japan, en tilfellum í Evrópu hafi farið fjölgandi á síðustu árum.Lesa má meira um rannsóknina hér.
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Sjá meira