Ökumaðurinn heyrði raddir Samúel Karl Ólason skrifar 19. maí 2017 07:49 18 ára kona lét lífið og 22 eru slasaðir. Vísir/AFP
Hinn 26 ára gamli Richard Rojas sagði lögreglu að hann heyrði raddir og að hann hafi ætlað sér að deyja. Þegar hann var handtekinn eftir að hafa ekið á minnst 23 einstaklinga á Times Square í gær gargaði hann á lögregluþjóna að þeir hefðu átt að skjóta hann og að hann hafi viljað drepa fólk. Ein 18 ára kona lét lífið eftir að hún varð fyrir bíl Rojas, sem er fyrrverandi meðlimur í flota Bandaríkjanna. Lögreglan telur að ekki hafi verið um hryðjuverk að ræða og að Rojas hafi verið undir áhrifum fíkniefna samkvæmt frétt BBC. Fjórir eru sagðir í alvarlegu ástandi og þrír til viðbótar slösuðust mikið, samkvæmt frétt ABC. Fyrr í mánuðinum var Rojas handtekinn fyrir að ógna manni með hnífi, en hann hefur margsinnis komist í kast við lögin á undanförnum árum. Árið 2012 réðst hann á leigubílstjóra í Flórída og hótaði að myrða lögregluþjóna. Á öryggismyndböndum úr nágrenninu má sjá hvernig Rojas tekur U-beygju á miklum hraða og keyrir upp á gangstétt þar sem fjöldi fólks er á göngu. Hann keyrði svo eftir gangstéttinni á miklum hraða þangað til hann keyrði á vegatálma. Þá reyndi hann að flýja af vettvangi en var stöðvaður af almennum borgurum. Einn þeirra sem tók þátt í að yfirbuga Rojas segir hann hafa öskrað og eitthvað mikið hafi verið að honum.
Tengdar fréttir Vitni segja bílstjórann hafa ætlað sér að keyra á vegfarendur Vegfarendur sem urðu vitni að því þegar ökumaður ók bíl sínum á gangandi vegfarendur á Times Square í New York í dag segja að augljóst sé að um ætlunarverk hafi verið að ræða. 18. maí 2017 23:30 Bíl ekið á gangandi vegfarendur á Times Square Minnst einn er látinn en atvikið er ekki talið vera hryðjuverk. 18. maí 2017 16:12 Mest lesið Lifandi maður sagður látinn í Morgunblaðinu Innlent Fletti upp í LÖKE vegna meintrar fíkniefnaskuldar vandamanns Innlent Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Erlent Bílar bíta grasið við bakka Vesturbæjarlaugar Innlent Segir Stefán hafa gert atlögu að friðhelgi einkalífs Innlent Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél Innlent Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Erlent Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Innlent Þvertekur fyrir nokkur tengsl Erlent Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Sjá meira
Vitni segja bílstjórann hafa ætlað sér að keyra á vegfarendur Vegfarendur sem urðu vitni að því þegar ökumaður ók bíl sínum á gangandi vegfarendur á Times Square í New York í dag segja að augljóst sé að um ætlunarverk hafi verið að ræða. 18. maí 2017 23:30
Bíl ekið á gangandi vegfarendur á Times Square Minnst einn er látinn en atvikið er ekki talið vera hryðjuverk. 18. maí 2017 16:12