Deildu um búrkíní í forsetakappræðum í Frakklandi Birgir Olgeirsson skrifar 20. mars 2017 00:01 Forsetaframbjóðendurnir í sjónvarpssal í kvöld. Vísir/EPA
Forsetaframbjóðendum lenti saman í sjónvarpskappræðum í Frakklandi í kvöld þegar talið barst að sundfatnaði íslamskra kvenna, eða búrkíní.Marine Le Pen, leiðtogi þjóðfylkingarinnar, sagði Frakkland eiga að vera á móti fjölmenningu en Emmanuel Macron, leiðtogi En Marche hreyfingarinnar, sakaði Le Pen um að reyna að gera múslima að óvinum Frakka.Á vef fréttastofu breska ríkisútvarpsins BBC er greint frá því að nýjustu kannanir gefi til kynna að að Le Pen muni hafa sigur í fyrstu umferð kosninganna en að Macron eða Francois Fillon, frambjóðandi Repúblikana, muni hafa sigur gegn henni í seinni umferðinni. Það rataði í hámæli síðasta sumar þegar bæjarstjórar í Frakklandi ákváðu að banna konum að klæðast búrkíníum á baðströndum. Var bannið byggt á almannahagsmunum í kjölfar hryðjuverkaárása ásamt því að ýmsir embættismenn héldu því fram að búrkíní sé kúgandi fyrir konur. Var bannið kært af mannréttindahópum en svo fór að æðsti stjórnsýsludómstóll Frakklands afturkallaði þetta búrkínibann. Í kappræðunum í kvöld sagðist Macron ekki sammála þeirri skoðun Le Pen að búrkíníið ögraði þeirri efahyggju sem væri rík í Frökkum þegar kemur að trúmálum.Francois Fillon hefur verið sakaður um að hafa í krafti stöðu sinnar útvegað eiginkonu sinni og börnum laun úr opinberum sjóðum fyrir litla sem enga vinnu.Fillon hefur hafnað þessum ásökunum og sagðist í kvöld ekki ætla að draga framboð sitt til baka vegna málsins. Sagðist hann jafnframt vera fórnarlamb í þessu máli.
Mest lesið Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Komið að ögurstundu Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Fleiri fréttir Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Sjá meira