Xhaka segir Norður-Írum að hætta að væla Magnús Ellert Bjarnason skrifar 12. nóvember 2017 16:15
Svisslendingar eru í fínum málum eftir 1-0 útisigur á Norður-Írlandi í fyrri leik liðanna í umspili um laust sæti á HM 2018. Sigurmarkið kom úr vægast sagt umdeildri vítaspyrnu eftir tæplega klukkutíma leik. Dómari leiksins, Ovidiu Hategan, mat það sem svo að skotið hefði verið í hendi Corry Evans, en í endursýningu sést að þetta var einfaldlega rangur dómur. Landsliðsmenn Norður-Írlands eru skiljanlega ósáttir með vítaspyrnudóminn og hafa látið í ljós óanægju sína í viðtölum síðustu daga. Granit Xhaka, miðjumaður Arsenal og svissneska landsliðsins, skilur hins vegar ekki af hverju þeir láta ekki staðar numið. „Ég veit ekki af hverju þetta er svona stórt mál eða af hverju þetta er svona mikið rætt. Norður-Írar verða að hætta þessu væli. Ég tel að við séum mun betra lið og við munum sýna það á heimavelli í seinni leik umpsilsins þegar við tryggjum sæti okkar á HM í Rússlandi," sagði Xhaka í viðtali. Þá sagði Xhaka að það hefðu verið nokkrar ákvarðanir í leiknum sem hefðu farið gegn svissneska liðinu, en það hafi ekki verið rætt neitt um það. Leikur Svisslands og Norður-Írlands byrjar kl 17:00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 sport.
Fótbolti Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Körfubolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Fótbolti „Mér fannst við ekki góðir“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin úr stórsigri Víkings í Smáranum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin úr stórsigri Víkings í Smáranum Maður dagsins: Þjálfari hans hjálpaði honum að þroskast Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Tyrkir náðu loksins sigri og jafntefli hentaði báðum liðum Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Smáþjóðin úr leik á HM en Pépé sendi Fílabeinsströndina áfram Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn „Mér fannst við ekki góðir“ Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Veit ekki hvort Haaland var að grínast Anton Ingi ráðinn þjálfari dansks félags Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Guðrún eftirlét Thelmu og Fanneyju toppsætið fyrir sumarfríið Onana aftur að láni frá Man. Utd Tómas Bent kominn með nýjan stjóra Oliver til FH „Alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima“ Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Yngstur til að byrja leik á HM í 24 ár Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Fékk fimm leikja bann fyrir að valda fótbroti Kone Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Óþekkti markvörðurinn kominn með fleiri fylgjendur en Tom Brady Sjá meira