Van Basten vill útrýma rangstöðureglunni og gulum spjöldum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. janúar 2017 15:00 Marco van Basten. Vísir/Getty
Marco van Basten, fyrrum leikmaður hollenska landsliðsins, starfar í dag sem yfirmaður tæknimála hjá FIFA [e. technical director] og hefur róttæka framtíðarsýn á knattspyrnuna. Meðal þeirra sem hann nefndi í nýlegu viðtali við Sport Bild í Þýskalandi var að útrýma rangstöðureglunni og gulum spjöldum. „Við verðum að líta fram á veginn og leita leiða til að bæta leikinn,“ sagði Van Basten í samtali við blaðið. „Það eru ýmsar breytingar sem við þurfum að prófa á næstu árum.“ Van Basten vill leggja rangstöðuregluna til hliðar til að koma í veg fyrir að „fótbolti verði eins og handbolti þar sem níu leikmenn, og markvörður, pakka í vörn.“ Þá nefnir hann að tímabundin útilokun frá leiknum geti komið í stað hefðbundinnar áminningar. „Það myndi hræða leikmenn. Það er erfitt að spila tíu gegn ellefu, hvað þá með átta eða níu menn í liðinu.“ Van Basten er með fleiri hugmyndir. Hann vill hætta með framlengingar og nota þess í stað vítaspyrnukeppnir sem líkjast vítum í íshokkí - þar sem leikmenn byrja að rekja boltann, einn gegn markverðinum. Þá hefur hann lagt til hugmyndir um að grípa til aðgerða sem taka á tímasóun leikmanna sem og að banna öðrum en fyriliðum liða að ræða við dómara.
Fótbolti Mest lesið Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Calvert-Lewin hættir ekki að skora Enski boltinn Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Dagskráin í dag: Stjörnur eiga leik á HM, NFL og enski Sport Fleiri fréttir Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Orri Steinn kominn með nýjan þjálfara Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Real Madrid - Sevilla | Tekst að róa ástandið fyrir jól? Willum spilaði sinn fyrsta leik í tæpa fjóra mánuði Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Skagastrákarnir áttu misjöfnu gengi að fagna Afríkukeppnin verður haldin á fjögurra ára fresti Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Immobile skaut Bologna í úrslit Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Sjá meira