Salah færist nær Liverpool Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. júní 2017 16:00 Mohamed Salah endar líklega í Liverpool. vísir/getty
Liverpool færist nær því að landa egypska landsliðsmanninum Mohamed Salah frá Roma samkvæmt heimildum Sky Sports en samningaviðræður Liverpool og Roma hafa staðið yfir í nokkrar vikur. Salah er nú þegar búinn að semja um kaup og kjör við Liverpool og er talinn fá fimm ára samning og 90.000 pund í vikulaun. Roma hafnaði nýverið 28 milljóna punda tilboði Liverpool í Salah en félögin virðast færast nær því að ná samkomulagi. Roma vill fá 35 milljónir punda fyrir leikmanninn og halda aðrir enskir miðlar því fram að með árangurstengdum greiðslum gæti kaupverðið endað í 39 milljónum punda. Egyptinn yrði með því dýrasti leikmaður í sögu Liverpool en Andy Carroll á enn þá metið. Enski framherjinn var keyptur á 35 milljónir frá Newcastle um árið en náði aldrei að slá í gegn á Anfield. Mohamed Salah, sem er 24 ára gamall, var ekki langt frá því að ganga í raðir Liverpool árið 2014 þegar Brendan Rodgers stýrði liðinu en Chelsea stakk þá undan þeim og keypti framherjann á ellefu milljónir punda. Salah komst aldrei í gang hjá Chelsea og fékk fá tækifæri. Hann fór á láni til Fiorentina og svo til Roma þar sem hann fékk svo samning í ágúst í fyrra. Hann var byrjunarliðsmaður í frábæru liði Roma sem setti persónulegt stigamet í ítölsku A-deildinni í vetur en Egyptinn skoraði fimmtán mörk í 31 leik.
Enski boltinn Mest lesið Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Enski boltinn „Gaf frá mér hljóð sem enginn maður á mínum aldri á að gefa frá sér“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - KA 38-34| Valsmenn sópuðu KA í sumarfrí Handbolti „Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ Golf „Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“ Körfubolti Snorri og Arnór eftirsóttir: Áhugi erlendis frá en HSÍ enn í forgangi Handbolti Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Íslenski boltinn Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Enski boltinn Besta sætið: Hættið þessu rugli og fagnið mörkunum ykkar Sport Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Isak í hópnum í París Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Manchester United nýtir fríið til að fara í æfingaferð til Írlands „Finnur fyrir metnaðinum og möguleikunum“ Sjá meira