Þýskir sósíaldemókratar komnir á flug með nýjan leiðtoga Guðsteinn Bjarnason skrifar 21. mars 2017 07:00 Martin Schulz, nýr leiðtogi SPD, ásamt Sigmar Gabriel, sem nú hefur vikið úr leiðtogasætinu. vísir/epa
Á sunnudaginn völdu þýskir Sósíaldemókratar sér nýjan leiðtoga í staðinn fyrir Sigmar Gabriel. Martin Schulz, sem var forseti Evrópuþingsins frá 2012 þar til nú í janúar, hlaut hundrað prósent atkvæða á flokksþinginu í Berlín. Þetta er í fyrsta sinn frá lokum fyrri heimsstyrjaldarinnar að leiðtogi Sósíaldemókrataflokksins, SPD, er kosinn með stuðningi allra fulltrúa á flokksþingi. Schulz tók ákvörðun um það í nóvember að söðla um í pólitíkinni, hætta á Evrópuþinginu en bjóða sig í staðinn fram sem kanslaraefni Sósíaldemókrata fyrir þingkosningarnar, sem haldnar verða í haust. Fylgi flokksins hefur tekið stökk í skoðanakönnunum eftir að flokkurinn féllst á að hann yrði kanslaraefni, en það gerðist í lok janúar. Flokkurinn er núna, nokkrum vikum síðar, kominn með um 35 prósenta fylgi, nokkurn veginn nákvæmlega jafn mikið og CDU, flokkur kristilegra demókrata, undir stjórn Angelu Merkel kanslara, en flokkarnir tveir hafa setið saman í ríkisstjórn undir forystu hennar síðan 2013. Fyrir tveimur árum mældist CDU með yfir 40 prósenta fylgi en SPD hékk í 25 prósentum. Eftir að flóttafólk tók að flykkjast til Þýskalands árið 2015 dalaði fylgi beggja flokkanna mikið, en Schulz hefur náð að snúa þeirri þróun við fyrir SPD. Merkel hefur hins vegar ekki náð að styrkja stöðu síns flokks. „SPD er kominn aftur. Við erum komnir til baka,“ sagði Schulz á flokksþinginu og boðar aukna áherslu á velferðarmál: „Ef við tryggjum ekki að hlutirnir séu félagslega sanngjarnir, þá mun enginn gera það,“ sagði hann. Jafnhliða uppgangi SPD hefur AfD, þjóðernisflokkur þeirra sem helst óttast útlendinga, dalað í fylgi og er kominn niður fyrir 10 prósent eftir að hafa mjakast upp undir fimmtán prósenta fylgi meðan flóttamannastraumurinn var hvað mestur. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Fleiri fréttir Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Sjá meira