Ólíkar hugmyndir um framhaldið á Brexit Guðsteinn Bjarnason skrifar 1. apríl 2017 07:00 Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, með bréfið frá Theresu May. Vísir/AFP
Töluverður áherslumunur er á því hvernig þau Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, og Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, sjá fyrir sér hvernig viðræðum um útgöngu Bretlands verði háttað. Tusk birti í gær svar sitt við úrsagnarbréfi Bretlands, sem May sendi til hans á miðvikudag. Við það tækifæri tók hann skýrt fram að ekki verði hægt að ræða framtíðarsamskipti Bretlands og Evrópusambandsins fyrr en viðræður um brotthvarf Bretlands verða langt komnar: „Það mun ekki gerast að samhliða viðræður hefjist.“ Þetta gengur þvert gegn því sem May sagði í bréfi sínu, og endurtók meira að segja nokkrum sinnum, að Bretar telji nauðsynlegt að gera samkomulag um framtíðarsamskipti við ESB samhliða viðræðum um útgöngu Bretlands úr ESB. Ekki er þó víst að þessi ágreiningur skipti miklu í reynd þegar viðræðurnar komast á skrið. Tusk tekur fram í bréfi sínu að í 50. grein Lissabonsáttmála ESB, sömu grein og inniheldur úrsagnarákvæðið sem Bretar hafa nú virkjað, segi að í viðræðum um skilmála útgöngunnar þurfi að taka mið af því hvernig fyrirkomulag verði haft á framtíðarsamskiptum við Breta. Þetta verður þó ekki hægt, segir Tusk í bréfinu, fyrr en á seinni hluta útgönguviðræðnanna, þegar þær eru nokkuð langt á leið komnar. Í bréfinu, sem Tusk sendi í gær til leiðtoga allra aðildarríkja Evrópusambandsins, segir hann einnig ekki koma til greina að Bretar eigi í viðræðum við einstök aðildarríki um framtíðarsamskipti við þau á meðan þeir eiga í viðræðum um útgönguskilmálana við ESB. Þá er tekið skýrt fram í svari Tusks til Breta að Evrópusambandið muni ekki semja um framtíðarstöðu Gíbraltarskaga nema í fullu samráði við Spán. Gíbraltarskagi hefur lengi verið bitbein Bretlands og Spánar, en skaginn hefur heyrt undir breska lögsögu þótt hann sé syðst á Spáni.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Mest lesið Komið að ögurstundu Erlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Erlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Veður Fleiri fréttir Íri réðst á bandaríska herþotu með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Sjá meira