Danir brjálaðir út af rauðri náttúru Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar 28. maí 2017 19:22 Hér má sjá listaverk Katharine Grosse. Vísir/Tine Høisgaard Jørgensen
Listasafn í Árhúsum hefur fengið sérstak leyfi til að mála stóran hluta gróðurs í Højbjerg rauðan. Íbúar í Árhúsum hafa mótmælt þessu listaverki harðlega og telja að verið sé að eyðileggja náttúruna. Ein þeirra er Tine Høisgaard Jørgensen sem skrifaði harðorða færslu á Facebook síðu sinni um þessa nýju náttúrusýn. Listaverkið er hluti af sýningu Aros listasafnsins sem ber heitið „The Garden - End of Times, Beginning of Times.“ Katharine Grosse er listamaðurinn sem stendur að baki verkinu en verkið er án titils. Málningin sem notast er við er akrílmálning og ber listasafnið fyrir sig að það hafi fengið tilskilin leyfi frá borgaryfirvöldum og lögreglunni, fyrir þessum listræna gjörningi. Markmiðið sé ekki að skaða umhverfið enda haldi náttúran áfram að vaxa þrátt fyrir þetta. Umræða um listaverkið hefur ekki einungis verið á Facebook en þingmenn hafa einnig látið sig málið varða. Alex Ahrendtsen, einn talsmaður menningarmála og meðlimur í Danska þjóðarflokknum, sagði að það giltu ekki sérstakar reglur eða lög um listamenn. Þeir verði einfaldlega að fara eftir lögum eins og aðrir ríkisborgarar. listamennirnir beri því persónulega ábyrgð ef þeir brjóta lögin. Mogens Jensen talsmaður menningarmála hjá Jafnaðarmönnum segir þó að verkið hafi einmitt náð ætlunarverki sínu. Ekki sé um að ræða vilta náttúru heldur mannskapaða náttúru og umræður um verkið fái okkur til að skoða hvernig við umgöngumst náttúruna.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Katla skelfur Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Sjá meira