Innlent

Eltihrellir Ásdísar fær sex mánuði í fangelsi í viðbót

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Málið var rekið fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra.
Málið var rekið fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra. vísir
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann á sjötugsaldri, Erlend Eysteinsson, í sex mánaða fangelsi fyrir brot gegn nálgunarbanni. Erlendur var dæmdur í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi í Hæstarétti í síðasta mánuði fyrir ítrekuð brot gegn fyrrum sambýliskonu sinni, Ásdísi Viðarsdóttur, og kemur fangelsisdómur héraðsdóms til viðbótar við þann dóm.

Erlendur er sagður hafa brotið nálgunarbannið með því að hafa sent Ásdísi alls 37 smáskilaboð á tímabilinu nóvember 2015 til febrúar 2016. Hann játaði sök í málinu. Refsing hans var ákveðin sem hegningarauki og taldi dómurinn útilokað að skilorðsbinda fangelsisdóminn.

Erlendur og Ásdís bjuggu saman í um tíu mánuði árið 2011 en eftir að samvistum þeirra lauk áreitti hann hana ítrekað. Í júní féll dómur í Héraðsdómi Reykjaness þar sem hann var sakfelldur fyrir líkamsárás, um átta hundruð brot á nálgunarbanni og brot gegn barnaverndarlögum. Hlaut hann þá átján mánaða dóm, en dómurinn var þyngdur í 24 mánuði í Hæstarétti.

 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×