Áhyggjufullir Grikkir vilja plan B fyrir Tyrklandssamninginn Guðsteinn Bjarnason skrifar 4. ágúst 2016 07:00 Flóttafólk flutt í lögreglufylgd aftur til Tyrklands frá Grikklandi. vísir/epa „
Við höfum miklar áhyggjur,“ segir Jannis Mouzalas, innflytjendaráðherra grísku stjórnarinnar, í viðtali við þýska dagblaðið Bild. „Í öllu falli þurfum við plan B.“ Hann er þarna að tala um samninginn sem Evrópusambandið gerði fyrr á árinu við Tyrkland um flóttafólk. Mikil óvissa hefur frá upphafi ríkt um þennan samning, og sú óvissa hefur magnast verulega eftir að stjórnarbyltingartilraun fór út um þúfur í Tyrklandi í síðasta mánuði. Samningurinn gengur út á það að Tyrkir taki aftur við flóttafólki frá Sýrlandi sem reynir að komast frá Tyrklandi til Grikklands og þaðan áfram til Evrópu. Í staðinn hét Evrópusambandið því að greiða Tyrkjum milljarða evra og sjá til þess að Tyrkir þurfi ekki vegabréfsáritun til að ferðast til ESB-landa. Tyrki er nú tekið að lengja eftir því að ESB aflétti kröfunni um vegabréfsáritun. Mevlut Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, krefst þess að það verði gert ekki síðar en í október. Að öðrum kosti verði ekkert frekar úr þessum samningi sem gerður var í mars. Sigmar Gabriel, varakanslari Þýskalands og leiðtogi þýska Sósíaldemókrataflokksins, vísar slíkum þrýstingi frá Tyrkjum á bug: „Þýskaland eða Evrópa má alls ekki láta kúga sig.“ Mannréttindafulltrúi þýsku ríkisstjórnarinnar, Bärbel Kofler, segir varhugavert að treysta tyrkneskum stjórnvöldum þessa dagana: „Í ljósi þess hvernig mál eru að þróast í Tyrklandi núna þá verðum við hugsa hlutina upp á nýtt. Við verðum að endurmeta flóttamannasamning ESB og Tyrklands,“ er haft eftir henni í umfjöllun á fréttavef þýska vikuritsins Der Spiegel. Frá því valdaránstilraunin var brotin á bak aftur fyrir rúmlega hálfum mánuði hafa tugir þúsunda manna verið handteknir eða reknir úr starfi í Tyrklandi, þar á meðal hermenn, lögreglumenn, dómarar, kennarar og blaðamenn. Grísk stjórnvöld segja reyndar ekkert benda til þess að Tyrkir standi ekki við sinn hluta flóttamannasamkomulagsins. Kofler, fyrrnefndur mannréttindafulltrúi þýsku stjórnarinnar, segir hins vegar að mörgu sé ábótavant í framkvæmd samningsins af hálfu Tyrklands. „Sem stendur er engu hægt að taka sem gefnu í Tyrklandi,“ segir hún.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Innlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Erlent „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Innlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Fleiri fréttir Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði Sjá meira